Húsfyllir í Miðgarði

Frá minningartónleikunum í Miðgarði. Þrír ættliðir úr Álftagerði og einn …
Frá minningartónleikunum í Miðgarði. Þrír ættliðir úr Álftagerði og einn tengdasonur tóku saman lagið, við undirleik Valmar Väljaots. Ljósmynd/Gunnhildur Gísladóttir.

Menn­ing­ar­húsið Miðgarður í Skagaf­irði var fullt út úr dyr­um að kvöldi sum­ar­dags­ins fyrsta þegar minn­ing­ar­tón­leik­ar um Stefán R. Gísla­son, kór­stjóra og org­an­ista, fóru fram. Var með tón­leik­un­um tekið for­skot á Sælu­viku Skag­f­irðinga sem hefst form­lega núna um helg­ina.

Stefán féll frá haustið 2023 en hann stjórnaði Karla­kórn­um Heimi í ára­tugi, auk þess að stjórna Kirkju­kór Glaum­bæj­ar­prestakalls, Álfta­gerðis­bræðrum og fleiri sönghópum. Stefán hefði orðið 70 ára síðasta haust og þá var stofnaður minn­ing­ar­sjóður um hann. All­ur ágóði af tón­leik­un­um renn­ur í sjóðinn, sem styrk­ir efni­legt fólk til náms í org­ell­eik og kór­stjórn.

Stefán R. Gíslason var lengi stjórnandi Karlakórsins Heimis og Álftagerðisbræðra, …
Stefán R. Gíslason var lengi stjórnandi Karlakórsins Heimis og Álftagerðisbræðra, en hann féll frá haustið 2023. Stofnaður hefur verið minningarsjóður um hann sem ætlað er að styrkja efnilega nemendur í orgelleik og kórstjórn.

Frábært kvöld og góður andi

Gísli Gunnarsson, vígslubiskup að Hólum og fv. prestur í Glaumbæ, átti frumkvæði að stofnun minningasjóðsins og undirbjó tónleikana í Miðgarði ásamt fleirum. Hann átti lengi gott og farsælt við Stefán.

„Þetta gekk allt vel, var frábært kvöld og góður andi,“ sagði Gísli við mbl.is.

„Uppselt var á tónleikana og safnaðist vel í minningarsjóðinn auk annarra gjafa sem sjóðnum hafa borist. Ég er afar þakklátur öllum þeim sem komu fram og gáfu sína vinnu, eins er ég þakklátur öllum þeim sem komu á tónleikana og voru með okkur,“ segir Gísli en gestir á tónleikunum í Miðgarði voru um 400 talsins og til viðbótar komu um 100 manns fram á sviðinu.

Karlakórinn Heimir, sem Jón Þorsteinn Reynisson stjórnar, tók hann við …
Karlakórinn Heimir, sem Jón Þorsteinn Reynisson stjórnar, tók hann við af Stefáni R. Gíslasyni. Ljósmynd/Gunnhildur Gísladóttir

Tónlist fluttu Karlakórinn Heimir, Álftagerðisbræður og niðjar þeirra, Kirkjukór Glaumbæjarprestakalls og harmonikutrió sem stjórnandi Heimis í dag fór fyrir, Jón Þorsteinn Reynisson. Með honum spiluðu Ísak Agnarsson og Guðmundur Smári Guðmundsson. Þrír Álftagerðisbræður eru enn að syngja, þeir Óskar, Pétur og Gísli Péturssynir. Með þeim sungu sonur Gísla, Agnar, og tveir synir hans, þeir Jóel og Ísak. Sjöundi söngmaðurinn í Álftagerðisbandinu var svo Atli Gunnar Arnórsson, tengdasonur Gísla.

„Skagfirsk stemming sveif svo sannarlega yfir vötnum. Þetta gat ekki tekist betur,“ segir Gísli um þessa kvöldstund í Miðgarði.

Harmonikutríóið skipuðu þeir Guðmundur Smári Guðmundsson, Ísak Agnarsson og Jón …
Harmonikutríóið skipuðu þeir Guðmundur Smári Guðmundsson, Ísak Agnarsson og Jón Þorsteinn Reynisson. Ljósmynd/Gunnhildur Gísladóttir
Séra Gísli Gunnarsson stóð að tónleikunum ásamt fleirum og hélt …
Séra Gísli Gunnarsson stóð að tónleikunum ásamt fleirum og hélt tölu í Miðgarði. Ljósmynd/Gunnhildur Gísladóttir
Stefán stjórnaði Heimismönnum í nærri 40 ár og hér er …
Stefán stjórnaði Heimismönnum í nærri 40 ár og hér er mynd sem varpað var á skjá í Miðgarði, tekin af honum hugsi á kóræfingu.
Kirkjukór Glaumbæjarprestakalls söng á tónleikunum en Stefán stjórnaði kórnum lengi …
Kirkjukór Glaumbæjarprestakalls söng á tónleikunum en Stefán stjórnaði kórnum lengi vel. Margrét Bóasdóttir stjórnaði kórnum að þessu sinni. Ljósmynd/Gunnhildur Gísladóttir
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert