Íslendingar þurfi að passa sig á því sem þeir segja

Íslendingar eiga áfram að reyna að sækja sér nám í Bandaríkjunum þótt samfélagið þar sé að breytast og þótt núverandi stjórnvöld hafi sótt að háskólunum.

Þetta er mat þeirra Steins Jóhannssonar, sem kenndi bandarísk stjórnmál um árabil, og Friðjóns R. Friðjónssonar, borgarfulltrúa og áhugamanns um stjórnmál í Bandaríkjunum.

Þeir ræddu við Dagmál mbl.is um atlögu Trump-stjórnarinnar að mörgum af virtustu menntastofnunum Bandaríkjanna.

Þeir eru þó sammála um það að nemendur framtíðarinnar þurfi mögulega að passa sig á því hvað þeir segja og gera. Ólíkir siðir séu í ólíkum menningarheimum og fólk þurfi að bera virðingu fyrir þeim aðstæðum sem eru á hverjum stað.

Þýðir að þú hafir ekki öll réttindi 

„Nemendur þurfa svo að gera það upp við sig hvort þeir séu tilbúnir að búa í samfélagi þar sem þeir eru hræddir við að tjá skoðanir sínar,“ segir Steinn.

„Ég er á því að fólk eigi að fara,“ segir Friðjón. „Alveg eins og menn fóru til Austur-Þýskalands á sínum tíma þá þarf fólk að taka mið af aðstæðum,“ segir Friðjón.

„Það að vera gestur þýðir að þú ert gestur og hefur ekki öll þau réttindi sem heimamenn hafa,“ segir Friðjón.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert