„Olíuskipinu“ snúið í rétta átt

Árborg er að ná lögbundnum viðmiðum en Bragi bjarnason bæjarstjóri …
Árborg er að ná lögbundnum viðmiðum en Bragi bjarnason bæjarstjóri segir enn verkefni framundan að gera daglegan rekstur sjálfbæran. Samsett mynd/mbl.is/Sigurður Bogi

„Þetta er mjög jákvæð niðurstaða hjá okkur og stórt skref í rétta átt,“ segir Bragi Bjarnason, bæjarstjóri í Árborg, en rekstr­araf­koma sveit­ar­fé­lags­ins árið 2024 er langt um­fram áætlan­ir og merki um mikinn viðsnúning í rekstri Árborgar.

„Við erum að ná lögbundnum viðmiðum en gerum okkur öll grein fyrir því að það er enn verkefni okkar að gera daglegan rekstur, eða svokallaðan A-hluta sveitarfélagsins, sjálfbæran þannig að hann standi undir öllu sem við þurfum að reka.“

Yfir þrír milljarðar umfram áætlun

Rekstr­arniðurstaða A- og B-hluta var já­kvæð um 3.243 millj­ón­ir króna, þrátt fyr­ir að ráð hafi verið gert fyr­ir 115 millj­óna króna halla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert