Víðáttumikil og hægfara lægð stjórnar veðrinu

Gera má ráð fyrir vætu öðru hverju sunnan- og vestanlands …
Gera má ráð fyrir vætu öðru hverju sunnan- og vestanlands í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Víðáttumikil og hægfara lægð suðvestur af landinu stjórnar veðrinu næstu daga, en í dag má gera ráð fyrir sunnan- og suðaustanátt og 5-10 m/s.

Skýjað og væta öðru hverju sunnan- og vestanlands, en bjart á norðaustanverðu landinu. Hiti verður á bilinu 7 til 15 stig, hlýjast norðaustan til.

Ekki verða miklar breytingar á veðrinu á morgun, þó verður heldur hægari vindur en í dag og skúrir á víð og dreif, þó síst á Norður- og Austurlandi. Hiti á bilinu 6 til 12 stig yfir daginn.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á sunnudag og mánudag:

Suðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skúrir, en þurrt að kalla á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 6 til 12 stig yfir daginn.

Á þriðjudag:

Sunnan og suðaustan 5-13. Skýjað með köflum og að mestu þurrt, en fer að rigna sunnanlands um kvöldið. Hiti breytist lítið.

Á miðvikudag:

Breytileg átt 8-15 og víða rigning. Hiti 2 til 8 stig. Norðlægari um kvöldið með slyddu, en úrkomulítið á sunnanverðu landinu.

Á fimmtudag:

Snýst í vestlæga átt og léttir víða til, en skýjað við vesturströndina. Hiti yfir daginn frá 3 stigum í innsveitum norðaustanlands, upp í 12 stig á Suðausturlandi.

Á föstudag:

Suðvestanátt og rigning, en úrkomulítið á Suðaustur- og Austurlandi.

Veður á mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert