Metnaðurinn vakti athygli í Danmörku

Norðurlandameistararnir Guðrún Fanney Briem og Iðunn Helgadóttir. Metnaður þeirra vakti …
Norðurlandameistararnir Guðrún Fanney Briem og Iðunn Helgadóttir. Metnaður þeirra vakti athygli á Norðurlandamóti stúlkna í skák, sem haldið var í Danmörku um helgina. Ljósmynd/Aðsend

Íslensku landsliðsstúlkurnar Iðunn Helgadóttir og Guðrún Fanney Briem urðu báðar Norðurlandameistarar í skák í dag. Norðurlandamót stúlkna fór fram í Fredericia í Danmörku um helgina og vakti metnaður stúlknanna mikla athygli.

Stúlkurnar náðu báðar sigri í sínum flokki, Iðunn í flokki 20 ára og yngri, með fjóra vinninga úr fimm skákum, og Guðrún Fanney í flokki 16 ára og yngri, með fjóra og hálfan vinning úr fimm skákum.

Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands og þjálfari íslenska hópsins, segir mikinn undirbúning að baki og metnaður stúlknanna miðað við hinar þjóðirnar hafi vakið athygli á mótinu.

„Á meðan á mótinu stóð voru stúlkurnar alveg ótrúlega duglegar að undirbúa sig fyrir hverja einustu skák og hvern einasta andstæðing. Margar skákirnar hafa hreinlega unnist á því sem var sérstaklega undirbúið fyrir þann andstæðing. Það er alveg einstakt hjá þeim.“

„Andstæðingarnir voru kortlagðir vel fyrir hverja skák“

Stúlkurnar lögðu mun stigahærri andstæðinga að velli á mótinu en Iðunn var nr. 7 í styrkleikaröðinni af 12 keppendum í sínum flokki og Guðrún Fanney var nr. 3 af 12 keppendum í sínum flokki fyrir mótið.

Þær taka undir orð þjálfara síns og segjast hafa undirbúið sig vel í margar vikur fyrir mótið og sérstaklega vel fyrir hverja skák.

„Margar skákir okkar á mótinu unnust einfaldlega á góðum undirbúningi, þar sem andstæðingarnir voru kortlagðir vel fyrir hverja skák,“ segir Iðunn.

„Við höfum teflt mjög mikið síðustu misserin og erum í góðu formi. Síðasta mót var Reykjavík Open sem lauk bara fyrir nokkrum dögum,“ bætir Guðrún Fanney við.

Þá segja þær Norðurlandamótið mjög skemmtilegt mót sem efli stúlkna- og kvennaskák og samskipti þjóðanna.

Með kvennalandsliði Íslands á ólympíuskákmótinu

Iðunn og Guðrún Fanney hafa æft skák lengi og eru báðar komnar í A-landslið kvenna þrátt fyrir ungan aldur og tóku báðar þátt í síðasta ólympíuskákmóti með kvennalandsliði Íslands.

„Þær eru mjög öflugar,“ segir Björn. Sjaldgæft sé að svona ungir keppendur taki þátt í ólympíuskákmótinu.

Þegar blaðamaður náði sambandi við Björn var hann nýkominn úr ísbúð með íslenska hópnum, þar sem árangri stúlknanna var fagnað. Sagði hann stúlkurnar hafa sest niður að tefla gamni-skákir um leið og heim á hótelið var komið.

„Þær fá ekki nóg,“ segir hann og bætir við að árangur Íslands á mótinu sýni hvað það hefur verið mikil uppsveifla í stúlkna- og kvennaskák síðustu árin.

Guðrún Fanney á æfingu níu ára

„Við höfum lagt aukinn kraft í stúlkna- og kvennastarfið og það hefur aukist jafnt og þétt. Stúlkum er að fjölga á mótum og æfingum.“

Guðrúnu Fanneyju má sjá í frétt Morgunblaðsins hér að neðan, þá á níunda aldursári. Fréttin er frá árinu 2019, þegar hlutfall kvenna í íþróttinni var lægra, og var Guðrún þar í hópi ungra skák-áhugastúlkna á æfingu á vegum Jó­hönnu Bjargar Jó­hanns­dótt­ur og Veroniku Stein­unnar Magnús­dótt­ur, sem báðar hafa teflt í kvenna­landsliðinu á ólymp­íu­mót­um.

„Skák er auðvitað ein­stak­lingsíþrótt en stelp­ur virðast leita meira í hópíþrótt­ir,“ er haft eftir Jóhönnu úr fréttinni. Þær Veronika ákváðu, í sam­ráði við Skák­skól­ann, að bjóða upp á viku­leg­ar æf­ing­ar fyr­ir stúlk­ur.

„Hug­mynd­in er að stelp­ur geti verið sam­an einu sinni í viku, tengst í gegn­um skák­ina, myndað hóp og styrkt hver aðra til þess að halda áfram í íþrótt­inni.“

Frábærar fyrirmyndir

Björn segir íslenska hópinn hafa samanstaðið af níu keppendum. Tveimur í elsta flokknum, einum í miðflokknum og sex í yngsta flokknum.

„Við vorum mjög nálægt verðlaunasætum í yngsta flokknum,“ segir hann.

„Þar eru stúlkur sem voru að fá sína fyrstu reynslu á svona stóru móti erlendis. Þær hafa frábærar fyrirmyndir í elstu stúlkunum sem hafa náð þessum frábæra árangri.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert