Plokkað um allt land

Hópur sjálfboðaliða frá Rótarýklúbbi Akureyrar fóru fyrir plokkurum í höfuðstað …
Hópur sjálfboðaliða frá Rótarýklúbbi Akureyrar fóru fyrir plokkurum í höfuðstað Norðurlands í dag. mbl.is/Þorgeir

Stóri plokkdagurinn er í dag og ýmiss konar viðburðir fóru fram víðs vegar um landið að því tilefni.

Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, setti Stóra plokkdaginn formlega við endurvinnslustöð Sorpu í Jafnaseli í Breiðholti en plokkarar í öllum landshlutum létu ekki sitt eftir liggja og söfnuðu alls kyns rusli og drasli bæði í þétt- og dreifbýli.

Á Akureyri og Sauðárkróki fór hópur sjálfboðaliða frá Rótarýklúbbunum fyrir plokkurum.

Bergþóra Ásmundsdóttir plokkari.
Bergþóra Ásmundsdóttir plokkari. mbl.is/Þorgeir
Rótarýfélagar á Sauðárkróki og íbúar í Skagafirði plokkuðu víða í …
Rótarýfélagar á Sauðárkróki og íbúar í Skagafirði plokkuðu víða í blíðviðri í dag.

Plokkarar fengu hressingu að verki loknu

Öflugur hópur mætti til verka í Kelduhverfi í Norðurþingi. Viðburðurinn var samvinnuverkefni Rótarskots í Norðaustri og Kvenfélags Keldhverfinga.

Allt rusl meðfram þjóðveginum í gegn um sveitina var hreinsað eftir því sem fram kemur í færslu Guðmundar Baldvins Guðmundssonar, fyrrverandi sveitarstjórnarmanns.

Á Tálknafirði var plokkað í góðu veðri. Mætingin var fín og boðið var upp á hressingu að plokki loknu.

Plokkað á Tálknafirði í dag í góðu veðri.
Plokkað á Tálknafirði í dag í góðu veðri. Ljósmynd/facebook/Plokk á Íslandi
Veitingar að plokki loknu á Tálknafirði voru ekkert slor.
Veitingar að plokki loknu á Tálknafirði voru ekkert slor. Ljósmynd/facebook/Plokk á Íslandi

Fiskikör á Þingeyri og tugir poka á Flúðum

Afrakstur Þingeyringa fyllti tvö stór fiskikör og gott betur en það. Spýtnabraki og járnadrasli verður komið á endurvinnslustöð og gömlum miðstöðvarofni fundinn betri staður. 

Þingeyringar komu saman og plokkuðu…þetta er afraksturinn😁gleðilegan plokkdag.
Þingeyringar komu saman og plokkuðu…þetta er afraksturinn😁gleðilegan plokkdag. Ljósmynd/facebook/Plokk á Íslandi

Ása María Ásgeirsdóttir tíndi um 90 ruslapoka á Flúðum og nágrenni í fyrra. Þegar hún gaf sér tíma í miðju plokkverkefni í dag til að taka sjálfu var hún komin í um 40 poka.

Skjáskot/facebook/Plokk á Íslandi

Eyrarbakki á afkastamikinn plokkara

Einn þekktasti plokkari landsins er á Eyrarbakka en Elín Birna Bjarn­finns­dótt­ir plokk­ar all­an árs­ins hring og los­ar nátt­úr­una við mikið magn af plasti og rusli.

Sveitungar hennar létu ekki sitt eftir liggja.

Plokkað á Eyrarbakka.
Plokkað á Eyrarbakka. Ljósmynd/facebook/Plokk á Íslandi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert