Vill ekki hræða landsmenn til að ganga í ESB

Kristrún ræddi við The Wall Street Journal.
Kristrún ræddi við The Wall Street Journal. mbl.is/Eyþór

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra vill ekki hræða Íslendinga til að greiða atkvæði með aðildarviðræðum við Evrópusambandið (ESB).

Þetta kemur fram í viðtali sem hún veitti bandaríska miðlinum The Wall Street Journal. 

Ríkisstjórn Kristrúnar hefur boðað að fyrir lok árs 2027 verði þjóðinni gefinn kostur á að kjósa um hvort hefja skuli aðildarviðræður við ESB.

Í fréttinni er komið inn á áhuga Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á Grænlandi og varnir Íslands. 

Fram kemur að Kristrún vilji forðast það að Íslendingar líti á þjóðaratkvæðagreiðsluna sem val á milli Evrópu og Bandaríkjanna. 

Þá kemur fram að flokksbróðir Kristrúnar, Dagur B. Eggertsson, telji að mögulega þurfi að flýta þjóðaratkvæðagreiðslu vegna stefnubreytingar Bandaríkjanna og breytts hlutverk Evrópuríkja á alþjóðavettvangi. 

Dagur vill skoða að flýta atkvæðagreiðslunni.
Dagur vill skoða að flýta atkvæðagreiðslunni. mbl.is/mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert