Opinn fundur um meðferð á máli Ásthildar

Ásthildur Lóa Þórsdóttir.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir. mbl.is/Karítas

Opinn fundur um meðferð forsætisráðuneytisins á erindi um persónulegt málefni þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, Ásthildar Lóu Þórsdóttur, verður haldinn á miðvikudaginn, 30. apríl.

Gestur fundarins verður Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. mbl.is/Karítas

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis stendur fyrir fundinum sem hefst kl. 9.00 í Smiðju, Tjarnargötu 9.

Fundurinn verður opinn almenningi á meðan húsrúm leyfir en bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert