Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var viðstödd minningarathöfn um helförina í síðustu viku þar sem minnst var sex milljóna gyðinga sem létu lífið í helförinni.
Rabbíni íslenska gyðingasamfélagsins, Avraham Feldman, talaði um sögu sinnar fjölskyldu og helförina og mikilvægi þess að heiðra minningu fórnarlambanna og tryggja að sagan gleymist aldrei. Hann vísaði í kenningar yfirrabbína Chabad-Lubavitch-hreyfingarinnar sem undirstrikuðu mikilvægi þess að menntun barna væri grundvölluð í góðum gildum. Hann talaði m.a. um hvíldarstund í skólum, þar sem nemendur íhuguðu siðferði og persónulega ábyrgð og gildi þess að gefa til samfélagsins. „Þegar við gefum munum við að heimurinn snýst ekki bara um okkur.“
Kristrún, sem hefur lagt áherslu á að styrkja minningardaginn um helförina, flutti einnig ræðu á athöfninni þar sem hún ræddi um að við þetta tækifæri væri verið að minnast og heiðra fórnarlömb helfararinnar, en einnig væri minningarathöfnin tækifæri til að líta inn á við og skoða heiminn í dag sem við getum haft áhrif á að móta.
„Kjarni minningarathafnarinnar liggur í djúpstæðu ákalli um samkennd, góðvild, og að viðurkenna sameiginlega mannúð okkar hvert í öðru. Að hlusta djúpt og bera umhyggju fyrir reisn og þjáningum annarra. Í heimi sem of oft er sundurleitur er samkennd ekki veikleiki, heldur styrkur okkar.“
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.