Víða skúrir á landinu í dag

Úrkomuspá klukkan 12 á hádegi.
Úrkomuspá klukkan 12 á hádegi. Kort/Veðurstofa Íslands

Í dag verður suðlæg eða breytileg átt á landinu 3-8 m/s og skúrir en skýjað með köflum norðaustan til og stöku skúrir þar síðdegis. Hitinn verður 4 til 10 stig.

Á morgun verða sunnan 3-10 m/s. Það verður skýjað og þurrt að mestu en bjartviðri um landið austanvert. Um kvöldið  gengur í suðaustan 10-15 m/s með rigningu. Hitinn verður á bilinu 6 til 13 stig.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert