Dró fingur eftir hálsi sér

Skuggalegt um að litast í matvöruversluninni Mas í Nerja í …
Skuggalegt um að litast í matvöruversluninni Mas í Nerja í gær og engin leið að borga. Karl segir gærdaginn hafa verið líkastan því að hverfa aftur til fortíðar, kaupmenn hafi lagt vöruverð saman á miðum og fólk greitt með reiðufé. Ljósmynd/Aðsend

„Ég var staddur í matvöruverslun sem heitir Mas þegar þetta gerðist. Við héldum bara að öryggi hefði farið þegar rafmagnið datt út og einhver færi bak við og bjargaði því, en svo leið tíminn,“ segir Karl Blöndal aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins við mbl.is, en Karl er staddur í smábænum Nerja, eigi alllangt frá borginni Málaga við suðurströnd Spánar.

Rafmagnsleysið á Íberíuskaganum í gær er kunnara orðið en frá þurfi að segja og Karl og kona hans voru einmitt stödd á Spáni eins og fjöldi Íslendinga um þessar mundir, annaðhvort fólk sem búsett er í þessari ástsælu sumarparadís Íslendinga eða fer í stuttar heimsóknir til að hvíla sig á dimmbrýndri veðráttu Norðurlandanna.

„Smám saman áttaði ég mig á því að það væri ekki hægt að kaupa neitt inn því kassarnir virkuðu ekki og ekki hægt að taka á móti greiðslum eða gera neitt,“ segir Karl frá. „Við skiluðum aftur í hillur og tókst að komast út, þeim tókst að gera rifu milli rennihurðanna og hleypa fólki út, en það var engum hleypt inn,“ heldur hann áfram.

Allt brauð horfið í bakaríinu

Eins og marga aðra grunaði aðstoðarritstjórann ekki að rafmagnsþurrðin væri svo víðtæk er síðar átti eftir að koma í ljós. „Við ákváðum að labba í aðra matvörubúð, en sáum þá á leiðinni að allt var slökkt alls staðar. Þessi búð sem við fórum í var hins vegar greinilega með eigin rafstöð því þar var allt í gangi og það var þar sem við komumst að því að þetta var víðtækara, fólk var að gúggla og svona,“ segir hann frá.

Óneitanlega sérstakt um að litast í kvöldrökkrinu þar sem bílljósin …
Óneitanlega sérstakt um að litast í kvöldrökkrinu þar sem bílljósin ein lýstu upp hverfið hjá Karli og föruneyti hans. Ljósmynd/Aðsend

Þeim hafi því auðnast að kaupa í matinn og koma sér til baka á íverustað þar sem voveifleg tíðindi biðu. „Einn í föruneytinu hafði verið úti á götu og séð þá hvar maður kom út á svalir og hrópaði „Spánn, Portúgal, Frakkland“ og dró svo fingurinn eftir hálsinum á sér. Maður vissi auðvitað ekkert hvað var að gerast,“ segir Karl.

Tekur hann þó fram að engin skelfing hafi gripið um sig, enda ekki um slíkt atvik að ræða að kalli fram múgsefjun, jafnvel ekki hjá blóðheitum Suður-Evrópubúum sem kíta sín á milli yfir smæstu atriðum.

„Maður sá samt að allt brauð var horfið í bakaríinu hérna á horninu, en þetta var samt engin uppákoma,“ segir Karl. Rafmagnsleysið hafi þó sett svip sinn á litla samfélagið í Nerja, margir barir og veitingahús hafi þurft að loka nú við upphaf stærstu vertíðar Spánverja og nágranna þeirra í Portúgal – ferðamannatímans.

Veitingamenn reyndust úrræðagóðir

„Við fórum á veitingastað í gærkvöldi, vorum beðin að koma snemma af því að þeir gætu ekki eldað í myrkri,“ segir Karl og hlær við, „þeir voru með gas og þarna fór maður dálítið inn í fortíðina, til dæmis í búðum. Menn voru að leggja saman á pappírssneplum og fólk að borga með peningum,“ segir hann frá.

„Ég virka hálfskuggalegur á þessari mynd sem konan tók af …
„Ég virka hálfskuggalegur á þessari mynd sem konan tók af mér,“ segir viðmælandinn, staddur í verslun í gær með neyðarlýsinguna eina virka. Ljósmynd/Aðsend

Enga hraðbanka hafi hann þó séð starfhæfa í rafmagnsleysinu og eru atburðirnir á Íberíuskaganum í gær ef til vill innlegg í samfélagsumræðu nútímans um nauðsyn reiðufjár sem sumir vilja banna þar sem það sé vatn á myllu undirheimanna á meðan aðrir sjá vitglóru í því að eiga seðla undir rúmdýnunni heima þegar skórinn virkilega kreppir.

„Þetta stóð mjög lengi, rafmagn var varla komið nokkurs staðar á um miðnætti í gær, það kom hjá okkur um tvöleytið í nótt og þetta er mesti útsláttur á rafmagni í Evrópu frá upphafi,“ segir Karl og nefnir þó eitt tilvik sem hann man stærra – og hverjir aðrir en blaðamenn muna svona lagað? – rafmagnsleysið á Indlandi í lok júlí 2012, umfangsmesta rafmagnsleysi sögunnar þegar 670 milljónir manna voru án rafmagns sem var um helmingur Indverja á þessum tíma og um tíundi hluti jarðarbúa.

Spánverjar eru misfyrirhyggjusamir eins og aðrar þjóðir og einhverjir höfðu …
Spánverjar eru misfyrirhyggjusamir eins og aðrar þjóðir og einhverjir höfðu greinilega gert ráð fyrir því að rafmagnið gæti svikið. Þetta hús var vel upplýst í gærkvöldi. Ljósmynd/Aðsend

Bendir Karl undir lokin á að hátt hlutfall orkugjafanna sem sviku Íberíuskagann í gær hafi verið sólar- og vindorka. „Nú er talað um að þessi kerfi með endurnýjanlegum orkugjöfum ráði ekki jafn vel við högg og óstöðugleika og gömlu kerfinu. Ef við líkjum þessu við höggdeyfa á bílum sem draga úr slynkjum frá veginum þá vantar þessa höggdeyfa í nýju orkukerfin. Þegar eitthvað slær út núna hafi þessi nýju kerfi ekki svigrúm til að bregðast við,“ segir hann án þess þó að vilja fallast á þá fullyrðingu blaðamanns að allt hafi verið betra í gamla daga.

Karl og fjölskylda eru á heimleið til Íslands, en náðu að upplifa umfangsmesta rafmagnsleysi í sögu Evrópu eins og fjöldi annarra Íslendinga sem rætt hafa við mbl.is síðan í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert