Alls hafa fallið fimm úrskurðir í Landsrétti undanfarna daga þar sem útlendingum er vísað af landi brott. Í þremur þessara tilvika er um að ræða hælisleitendur sem dvalið hafa ólöglega hér á landi, en í einu er um að ræða litháískan mann sem fallist var á að framseldur yrði til síns heimalands á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar. Gengu tveir úrskurðir í Landsrétti um þann mann.
Maðurinn hefur verið búsettur hér á landi undanfarin ár, en dómari í Vilníus í Litháen gaf út handtökuskipun honum á hendur í febrúar sl., en maðurinn hafði verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir þrjú kynferðisbrot gegn barni. Átti hann eftir að afplána fjögur ár og sex mánuði af dóminum. Hann var svo í öðru máli hnepptur í gæsluvarðhald svo hann yrði tiltækur þegar til brottflutnings kæmi.
Í hinum þremur tilvikunum voru útlendingarnir hnepptir í gæsluvarðhald svo þeir hlypust ekki á brott áður en þeir yrðu fluttir burt af landinu.
Í einu þessara tilvika var um að ræða mann sem nefndur er X í úrskurðinum og á að baki sér nokkurn brotaferil hér á landi og hefur áður gengið undir nöfnunum X1, Xw2 og X3 í dómsskjölum. Þjóðerni viðkomandi kemur ekki fram. Honum hefur ítrekað verið gert að yfirgefa landið og hann hefur ekki virt endurkomubann á Schengen-svæðið. Hann hefur nokkurn brotaferil að baki sér, hefur verið dæmdur fyrir brot á umferðarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og almennum hegningarlögum.
Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag. Einnig má nálgast hana án endurgjalds í Mogganum, nýju appi Morgunblaðsins og mbl.is.