Fyrsta stóra farþegaskip sumarsins er væntanlegt til Reykjavíkur fimmtudaginn 1. maí.Það heitir Norwegian Pearl og er 93.530 brúttótonn. Það getur tekið 2.394 farþega og í áhöfn eru 1.099 manns. Áætlað er að skipið leggist að Skarfabakka í Sundahöfn klukkan 9 að morgni.
Með komu Norwegian Pearl má segja að hin eiginlega vertíð skemmtiferðaskipanna hefjist þetta sumarið.
Fjöldi skipakoma verður í maí og smám saman fer þeim fjölgandi eftir því sem líður á sumarið. Mesta annríkið verður í júlí og ágúst. Síðasta skipið er bókað 27. október.
Í sumar eru bókaðar tæplega 240 komur farþegaskipa/skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir tæplega 310 þúsund farþegum sem er örlítil fækkun frá því í fyrra þegar farþegafjöldinn var 321.966. Áætlanir gera ráð fyrir að skiptifarþegar verði um 160 þúsund sem er fjölgun frá árinu áður þegar þeir voru 156.454.
Flest stóru skemmtiferðaskipin sem hingað koma leggjast að bryggju á Skarfabakka. Í sumar verður nokkuð þröngt um þjónustu við skipin við Skarfabakka þar sem bygging farþegamiðstöðvar Faxaflóahafna stendur nú sem hæst. Áætlað er að hin nýja farþegamiðstöð verði tilbúin á vormánuðum 2026.
Faxaflóahafnir héldu vorfund sinn nýlega til að kynna fyrirtækjum í ferðaþjónustu, umboðsmönnum og öðrum hagaðilum skipulag sumarsins við móttöku skemmtiferðaskipa.
„Hinn árlegi vorfundur Faxaflóahafna vegna vertíðar skemmtiferðaskipa á sér áratugalanga hefð og er fastur vorboði fyrir alla þá hagaðila sem koma að móttöku skemmtiferðaskipa á starfsvæði Faxaflóahafna. Húsfyllir var í aðalstöðvum Faxaflóahafna að Tryggvagötu 17 og ljóst að vilji hlutaðeigandi til að láta þessa mikilvægu grein ferðaþjónustunnar ganga sem best er mikill,“ segir á heimasíðu Faxaflóahafna.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.