Hallgrímskirkja varar gesti við

Grétar segir leiðinlegt en nauðsynlegt að setja upp aðvaranir fyrir …
Grétar segir leiðinlegt en nauðsynlegt að setja upp aðvaranir fyrir gesti vegna vasaþjófa. Samsett mynd/Hallgrímskirkja/Aðsend

Ferðamenn við Hallgrímskirkju eru varaðir sérstaklega við vasaþjófum áður en þeir halda inn í kirkjuna. Grétar Einarsson kirkjuhaldari segir að skilti hafi verið komið upp við innganginn að kirkjusalnum eftir að fregnir bárust af vasaþjófum á dögunum.

Hann segir að minnst þrjú tilvik hafi verið tilkynnt til lögreglu þar sem vasaþjófar höfðu eigur af fólki inni í kirkjunni.

„Við erum það fjölmennur ferðamannastaður að við ákváðum að setja upp viðvaranir við kirkjuna,“ segir Grétar.

Leiðinlegt en nauðsynlegt 

Að sögn hans er framtakið ekki sprottið af tilmælum lögreglu heldur hafi kirkjan ákveðið sjálf að gera þetta.

„Þetta er leiðinlegt og við viljum ekki hafa svona skilti uppi við. En við viljum vara fólk við frekar en að gera ekki neitt,“ segir Grétar.

Að sögn hans hefur hann og aðrir kirkjuverðir ekki orðið varir við neina þjófa enda standi þeir ekki út úr hópi annarra ferðamanna.

Slóttugir og vel að sér 

„Mér skilst að þeir séu það slóttugir og vel að sér í þessum fræðum. Þessir einstaklingar líta bara út eins og hver annar ferðamaður og ég get ekki sagt að það sé eitthvað sameiginlegt sem einkennir þá sem við kirkjuverðirnir höfum komið auga á,“ segir Grétar. 

Þá segir Grétar að öryggismyndavélar séu í kirkjunni en jafnframt að gjarnan sé þétt á milli fólks sem skoðar kirkjuna og því sé erfitt að fylgjast með því hvort óprúttnir aðilar reyni að seilast í vasa fólks. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert