Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari og fyrrum sérstakur saksóknari segir að umfjöllun Kveiks frá því í kvöld, þar sem fram kemur að núverandi og fyrrverandi lögreglumenn sem stunduðu njósnir, hafi jafnframt verið starfsmenn sérstaks saksóknara þegar njósnafyrirtæki þeirra var stofnað, sé áfall fyrir embættið.
„Við teljum að það sem þarna er verið að lýsa sér þvert gegn öllum gildum og siðferði innan lögreglunnar. Í okkar huga er þetta afar slæmt tilvik og erum í rauninni í hálfgerðu áfalli yfir þessu öllu,“ segir Ólafur.
Fram kom í þættinum að Björgólfur Thor Björgólfsson hafi greitt fyrir njósnir á mönnum sem stóðu að hópmálsókn á hendur honum. Eins að með njósnunum hafi hann viljað koma höggi á Róbert Wessmann.
Umræddir fyrrum starfsmenn sérstaks saksóknara eru þeir Jón Óttar Ólafsson, fyrrum rannsóknarlögreglumaður, og Guðmundur Haukur Gunnarsson lögmaður, sem lést árið 2020. Þeir létu af störfum hjá embætti sérstaks saksóknara um áramótin 2011-2012 en stofnuðu njósnafyrirtækið PPPFS árið 2011.
Lengi hefur verið grunur um að þeir hafi stolið gögnum frá embættinu áður en þeir létu af störfum. Þeir voru kærðir í apríl 2012 þar sem þeir voru grunaðir um að nýta sér gögn embættisins. Ríkissaksóknari felldi málið niður á sínum tíma.
„Um leið og grunur lék á því að eitthvað misjafnt hefði átt sér stað á sínum tíma þá var brugðist við með því að kæra og setja í gang rannsókn,“ segir Ólafur.
Að sögn hans hefur ríkissaksóknari þegar tekið upp rannsókn á málinu sem lýst var í í kvöld. Spurður hvort málið sé fyrnt segir hann það úrlausnarefni sem saksóknari þurfi að svara.
„Það er búið að láta ríkissaksóknara vita af þessu og það er úrlausnarefni hans að svara því eins og málin standa í dag. Um leið og við höfðum fregnir af þessu þá létum við ríkissaksóknara vita,“ segir Ólafur.