Kristín Sóley Björnsdóttir, stjórnarmaður í nýrri stjórn RÚV, vill að Ísland sniðgangi Eurovision ef Ísrael fær að taka þátt. Diljá Ámundardóttir Zoëga tekur í svipaðan streng og segir óeðlilegt að land sem fremji „þjóðarmorð“ á Gasaströndinni taki þátt í keppninni.
Hvað sem þeirra skoðunum líður er óljóst hvort stjórnin geti yfir höfuð tekið ákvörðun um málið. Einn stjórnarmanna bendir á útvarpsstjóra. Annar segir að málið sé líklegast þegar afgreitt, og ósennilega hægt að hrófla við því núna.
Ný stjórn RÚV var kjörin af Alþingi í dag. Alls sitja fimm í meirihluta stjórnarinnar: tveir fulltrúar Samfylkingarinnar, tveir fulltrúar Viðreisnar og einn fulltrúi Flokks fólksins. Þar sitja Stefán Jón Hafstein, Kristín Sóley Björnsdóttir, Diljá Ámundadóttir Zoëga, Auður Finnbogadóttir og Heimir Már Pétursson.
Vegna framgöngu Ísraelsmanna á Gasa í rúmt ár hafa sumir kallað eftir því að Ísland sniðgangi Eurovision taki Ísrael þátt. Mbl.is ræddi við nýju stjórnarmennina um málið, að einum undanskildum sem ekki náðist í.
Stefán Jón Hafstein, sem var tilnefndur af Loga Einarssyni menningarmálaráðherra og þykir fyrir vikið líklegt formannsefni stjórnar, segist ætla að bera upp málið á næsta stjórnarfundi.
Hann gefur þó ekki upp sína persónulegu afstöðu á þessari stundu. Hann kveðst óviss um það hvort stjórn RÚV geti gripið inn í og að málið sé að líkindum „frágengið“.
Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri Menningarfélags Akureyrar í Hofi, var einnig kjörin í stjórn RÚV. Hún sat á lista Samfylkingarinnar í síðustu kosningum. Hennar afstaða er afdráttarlaus:
„Ég vil að við sniðgöngum keppnina ef Ísrael verður ekki vísað úr henni,“ segir Kristín Sóley í samtali við mbl.is. „Sem um leið er alveg ömurlega leiðinlegt,“ bætir hún við og vísar til þess að búið sé að velja framlag Íslands, VÆB-bræðurna, sem séu sannarlega verðugir fulltrúar Íslands í keppninni.
Diljá Ámundadóttir Zoega, varaþingmaður Viðreisnar, er eini aðalmaðurinn í meirihluta RÚV-stjórnar sem sat í síðustu stjórn. Formaður Viðreisnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, sagði á dögunum að hún teldi „óeðlilegt“ að Ísrael tæki þátt í Eurovision í ár með tilliti til framgöngu Ísraelshers á Gasa.
Diljá tekur undir með Þorgerði að það sé óeðlilegt að Ísrael – sem fremji „þjóðarmorð“ á Gasaströndinni – taki þátt í keppninni. Hún vill samt ekkert endilega sniðganga keppnina en vill þó að Íslendingar geri afstöðu sína skýra.
En Diljá, sem sat í minnihluta í RÚV-stjórn frá 2022, bendir á að stjórnin hafi ekkert um þessi mál að segja þar sem dagskrárvald liggi ekki hjá stjórninni, heldur útvarpsstjóra.
„Við höfum fengið þau svör og upplýsingar […] að við værum rekstrarstjórn og gætum aldrei tekið neina ákvörðun um þetta. En þetta mál og þessar hræðilegu aðstæður hafa verið ræddar á meirihluta funda,“ segir hún.
„Ég væri til í að hafa frekari áhrif á þessi mál.“
Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins og nú aðalmaður í meirihlutanum í stjórn RÚV, er ekki eins yfirlýsingaglaður.
Hann segist í samtali við mbl.is ekki vilja gefa upp afstöðu sína, „sérstaklega þegar ég hef ekki mætt á einn stjórnarfund“.
„En mér finnst hegðun Ísraelsstjórnar ömurleg,“ segir hann. Þá sé einnig ömurlegt að „þarna skuli vera framin mannréttindabrot hvað eftir annað, þrátt fyrir þessa hörmulegu árás Hamas“ hinn 7. október 2023, segir hann.
Honum finnst reyndar furðulegt að Ísrael sé leyft að keppa þrátt fyrir að vera ekki í Evrópu.
„Mér finnst þessi söngvakeppni persónulega hundleiðinleg. En það er algjört aukaatriði hvað mér finnst um hana.“
Ekki náðist í Auði Finnbogadóttur, varaþingmann Viðreisnar og nýjan aðalmann í stjórn RÚV, við vinnslu fréttar.