Ólíklegt að undirskriftarlisti hafi áhrif

Ljósmynd/Aðsend

Skjólstæðingar Janusar endurhæfingar afhentu Ölmu Möller heilbrigðisráðherra undirskriftalista gegn lokun úrræðisins í gær.

Spurð hvort listinn hafi áhrif á ákvörðunina um að loka Janusi segir Alma:

„Þetta mál er bara svo langt komið, það var skrifað undir samningslok 8. nóvember.“ 

Alma tók við ráðuneytinu þegar samningurinn hafði þegar verið undirritaður en henni þótti mikilvægt að taka „einn snúning“ á málinu og athuga hvort að starfsemin gæti átt heima undir hatti Reykjalundar en um það náðist ekki samkomulag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert