„Þetta er gríðarlegt bakslag að mínum dómi og er rennandi blaut tuska framan í íslensk heimili,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og formaður Verkalýðsfélags Akraness, spurður út í nýjustu verðbólgumælingar.
Verðbólga mælist nú 4,2% og eykst á milli mánaða.
Þetta er í fyrsta sinn í tæpt ár sem verðbólga vex á milli mánaða.
„Við vorum svo sannarlega að sjá verðbólguna þróast í rétta átt þegar hún mældist 3,8% í síðasta mánuði en að horfa á hana fara nú upp í 4,2% eða hækkun upp á 0,93 er mikið áhyggjuefni svo ekki sé fastar að orði kveðið,“ segir Vilhjálmur.
Vilhjálmur segir að vissulega spili flugfargjöld, hækkun á húsaleigu og páskar stóran þátt í aukningu verðbólgunnar.
„Grundvallaratriði í þessum öllu saman er það að þegar við fórum í þá vegferð 6. mars 2024 við gerð stöðugleikasamninganna, þar sem gengið var frá kjarasamningi til langs tíma með hófstilltum hætti þar sem markmiðið var að ná verðbólgunni niður hratt og vel og vöxtum síðan með, að ef það er að koma bakslag í það er það mikið áhyggjuefni fyrir íslensk heimili,“ segir hann.
Vilhjálmur segist vilja minna á hvaða afleiðingar þessi hækkun hafi fyrir skuldsett heimili. Hann segir að 50 milljóna króna verðtryggt lán komi til með að hækka um 465 þúsund krónur á milli mánaða.
„Ég vil líka minna á að í frétt sem kom hjá mbl.is í mars í fyrra um að verðtryggðar skuldir heimilanna hefðu náð nýjum hæðum og væru 1.950 milljarðar. Það þýðir að verðtryggðar skuldir heimilanna eru að hækka um tæpa 20 milljarða á milli mánaða. Þetta er algjörlega galið og er bara skattlagning á skuldsett heimili sem voru þvinguð úr óverðtryggðum lánum yfir í verðtryggð lán,“ segir hann.
Vilhjálmur segir grundavallaratriði nú sé að allir axli ábyrgð við að ná niður verðbólgu og vöxtum. Hann segir að íslenskt launafólk sé búið að leggja sitt af mörkum til næstu fjögurra ára og ef aðrir ætli ekki að spila með þá muni það ekki gera neitt annað en að enda illa.
„Ég biðla enn og aftur til verslunarinnar, þjónustu, flugfélaga, ríkis og sveitarfélaga að sýna ábyrgð,“ segir hann.
Næsta stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans verður 21. maí næstkomandi. Spurður hvort hann óttist að peningastefnunefnd bankans hækki stýrivextina í ljósi aukningu verðbólgunnar segir hann:
„Ég skal ekki segja til um það hvort bankinn muni horfa á þetta sem eitthvað annmarkað tilvik vegna þess að páskarnir voru á öðrum tíma. Ég geri mér ekki grein fyrir því. En staðreyndin er sú að skaðinn er skeður með þessari hækkun á vístölunni. 20 milljarðar hafa skollið á verðtryggðum skuldum íslenskra heimila. Þetta er tvöfalt meira heldur en auðlindagjöld í sjávarútvegi sem er verið að ræða um núna.“