Tveir menn reyndu að brjótast inn í hraðbanka en þeir höfðu ekki erindi sem erfiði og voru stöðvaðir af lögreglu við verknaðinn. Báðir voru þeir vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknarinnar.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna hennar frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun. Alls eru 51 mál bókuð í kerfum lögreglu á tímabilinu og gista 11 í fangageymslum lögreglunnar.
Lögreglan á lögreglustöð 2, sem sinnir Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi, fékk tilkynningu um eld á iðnaðarsvæði. Þar hafði kviknað í gömlum rafhlöðum. Tjón varð lítið þar sem eldurinn kviknaði utandyra. Slökkviliðið var kallað á staðinn sem slökkti eldinn greiðlega.
Sex ökumenn voru kærðir fyrir of hraðann akstur og þá var lögregla kölluð til vegna umferðaróhapps. Ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og var því handtekinn og vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.