Segir styrkina hafa skilað sér seint og illa

Vorhretið á Norðurlandi í júní í fyrra lék marga bændur …
Vorhretið á Norðurlandi í júní í fyrra lék marga bændur grátt. Urðu margir fyrir þungum búsifjum, kali í túnum, fjárfelli og rýrari afurðum mbl.is/Atli Vigfússon

Seinagangur við efndir loforða ríkisstjórnarinnar við afgreiðslu styrkja til bænda vegna kalskemmda síðasta vor og uppskerubrests af völdum þeirra sætir gagnrýni og segir Jón Þórarinsson, bóndi á Hnjúki í Skíðadal, í samtali við Morgunblaðið að styrkirnir hafi skilað sér bæði seint og illa.

Síðan telur hann að útlit sé fyrir að það sama verði uppi á teningnum vegna afurðatjóns sem bændur urðu fyrir af völdum fannfergis og kuldatíðar í júní í fyrra.

Hann segir skrýtið að ekkert skuli heyrast frá Bændasamtökunum vegna þessa.

„Mér finnst algert lágmark að við sem urðum fyrir tjóni og sóttum um bætur fáum einhver svör,“ segir hann og telur að almennt séð megi gera ráð fyrir að það afurðatjón sem bændur urðu fyrir vegna veðurfars og uppskerubrests sé verulegt. Afurðirnar geti hafa numið um þriðjungi þess sem búast megi við í eðlilegu árferði.

Í byrjun apríl tilkynnti atvinnuvegaráðuneytið að 725 milljónir yrðu veittar til greiðslu bóta vegna tjóns sem varð í kuldakastinu síðasta vor og tekur það bæði til bóta vegna kal- og uppskerutjóns og afurðatjóns bænda.

„Inni í þessu kuldakaststjóni er gert ráð fyrir tjóni vegna afurðataps. Við erum ekki enn búnir að sjá útfærsluna á greiðslunum, enda hafa þær ekki átt sér stað. En eins og málið var kynnt fyrir okkur á að mæta afurðatjóni meðal annars með þessum bótum,“ segir Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtakanna en hlutfallið á milli afurðatjóns og kaltjóns liggur ekki fyrir að sögn hans.

Trausti segir öllum frjálst að gagnrýna Bændasamtökin, en minnir á að hann hafi verið á fundaferð með atvinnuvegaráðherra fyrr í þessum mánuði þar sem rætt var við bændur og kunngjört um greiðslu viðbótarbótanna.

Hann segir að best hefði verið ef gripið hefði verið til framangreindra aðgerða fyrr og málið klárað fyrr, en samkvæmt upplýsingum sínum sé stefnt að greiðslu bótanna í maí nk.

Hvað varðar uppskerubrest sem búast megi við í sumar vegna kaltjóns síðasta vor segir Trausti að þær bætur sem tilkynnt hafi verið um nái ekki til þess tjóns, enda sé það ekki orðið. Hins vegar muni samtökin fylgjast með framvindu mála og ekki væri óeðlilegt að reyna að ná samtali við ráðuneytið varðandi það þegar staða mála liggur fyrir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert