„Þetta var ógeðslegt“

Heba og maður hennar í dimmri lyftunni í Cabo Roig …
Heba og maður hennar í dimmri lyftunni í Cabo Roig í rafmagnsleysinu í gær þar sem þau fengu að dúsa þar til fórnfús nágranni fór fótgangandi á næstu lögreglustöð. Lögreglan hringdi í slökkviliðið sem kom í forgangsakstri og skrúfaði lyftuna handvirkt niður á næstu hæð. Ljósmynd/Aðsend

Heba Gísladóttir, sjúkraliði á eftirlaunum í spænska strandbænum Cabo Roig, þar sem hann hvílir í hæglátri kyrrð sinni spölkorn suður af Torrevieja á austurströndinni, var ekkert að skafa af því í viðtali við mbl.is eftir þau hjónin sátu föst í tvær klukkustundir í lyftu hússins sem þau búa í níu mánuði á ári þegar rafmagn fór af mestöllum Íberíuskaganum í gær.

„Við vorum að fara í verslunartúr og vorum nýkomin inn í lyftuna þegar rafmagnið fór,“ segir Heba, en þau hjón búa uppi á þriðju hæð í lyftuhúsi, í íbúð sem Breti nokkur leigir þeim frá september til maí. Sumrunum verja þau uppi á Íslandi að svo miklu leyti sem hægt er að tala um sumar þar lengur.

„Ég hringdi neyðarbjöllunni hvað eftir annað og loksins komu einhver hjón sem sátu úti í sundlaugargarðinum og heyrðu í bjöllunni,“ heldur Heba áfram frásögninni. Hefðu flestir talið að þar með væri málið leyst, en svo var aldeilis ekki þegar rafmagnsleysi herjaði á nær allan næststærsta skaga heimsálfunnar Evrópu.

Þrautgóð á raunastund

„Þau reyndu að hringja í lögregluna, slökkviliðið og neyðarþjónustuna fyrir lyfturnar en náðu ekki í neinn. Við héldum fyrst að rafmagnsleysið væri bara í þessu húsi,“ segir Íslendingurinn, en annað átti heldur betur eftir að vitrast öllum þeim er fylgdust með heimsfréttunum í gær þar sem rafmagnsleysið á Spáni og í Portúgal var víðast fyrsta og efsta frétt.

Þau hjónin voru bara tvö í lyftunni – sem betur fer því plássið þar var ekki til að hrópa húrra fyrir eins og flestir þekkja sem tekið hafa lyftur í spænskum fjölbýlishúsum. Stundum er stiginn einfaldlega betri – jafnvel fljótlegri.

Á meðan allt lék í lyndi. Hjónin búa í Cabo …
Á meðan allt lék í lyndi. Hjónin búa í Cabo Roig níu mánuði á ári og una hag sínum vel ef frá er talið atvikið í gær. Heba segir stemmninguna hafa verið undarlega á veitingastað í hverfinu og andrúmsloftið læviblandið. Almenningur hafi skellt skuldinni á Pútín. Og hver veit, spænsk yfirvöld þegja enn þunnu hljóði um hvað í ósköpunum gerðist þegar hátt í 60 milljónir Evrópubúa urðu skyndilega án rafmagns um hábjartan vordag í gær. Ljósmynd/Aðsend

„Við fengum bara að heyra „því miður, við getum ekkert gert“ og þá fóru manni að fallast hendur, þá fór innilokunarkenndin að gera vart við sig,“ heldur Heba áfram frásögn sinni.

Landið tók að rísa þegar fórnfús nágranni þeirra íslensku hjónanna fór fótgangandi á næstu lögreglustöð þaðan sem lögregla hringdi einfaldlega í slökkviliðið. „Svo frétti ég það eftir á frá vinafólki okkar að slökkviliðsbíllinn hefði komið í forgangsakstri með öll ljós og sírenur og þeir voru tvær mínútur að ná okkur út,“ segir Heba frá.

„Pútín, Pútín!“

Skrúfaði slökkviliðið lyftuna handvirkt niður þar til þau hjónin gátu skriðið út úr henni og urðu frelsinu fegin. „Þetta var ógeðslegt, pínulítil lyfta og þetta voru tveir tímar. Verst var þegar maðurinn kom og kallaði til okkar að þau gætu ekkert gert, þá bjuggumst við bara við því að við yrðum þarna um aldur og ævi,“ segir Heba.

Þau hafi svo farið á veitingastað skammt frá og hitt þar fjölda Íslendinga, en ásamt Bretum og Írum hittast Íslendingar líkast til einna mest fyrir á götum Cabo Roig.

„Andrúmsloftið var ofboðslega skrýtið, allir kölluðu bara „Pútín, Pútín!“ og þetta var bara undarlegt,“ segir Heba frá og undrast enn meira að spænsk yfirvöld hafi enn ekki gefið út neinar haldbærar skýringar á umfangsmesta rafmagnsleysi síðari tíma í Evrópu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert