„Virðist allt vera komið á réttan kjöl“

JL-húsið er búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.
JL-húsið er búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. mbl.is/sisi

Gengið hefur verið frá því að hælisleitendur geti áfram búið í JL-húsinu við Hringbraut og á það búsetuúrræði að vera tryggt til frambúðar.

„Það sem snýr að okkur á allt saman að vera komið á hreint. Það býr þarna fólk á okkar vegum núna og stendur ekki til að breyta því,“ segir Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar. „Þetta virðist allt vera komið á réttan kjöl,“ segir hún.

86 einstaklingar búa um þessar mundir í húsnæðinu.

Öll tilskilin leyfi eiga núna að vera til staðar

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í janúar sl. úr gildi ákvörðun skipulagsfulltrúa um að breyta JL-húsinu í búsetuúrræði fyrir hælisleitendur. Framkvæmdasýslan og skipulagsyfirvöld borgarinnar unnu í framhaldi af því að lausn málsins í samskiptum við eiganda húsnæðisins, sem bar að afla tilskilinna leyfa. Eiga nú öll leyfi að vera til staðar svo hýsa megi hælisleitendur í húsinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert