Aðeins 14 nýnemar komast að í Klettaskóla

Gjarnan er glatt á hjalla hjá nemendum í Klettaskóla.
Gjarnan er glatt á hjalla hjá nemendum í Klettaskóla. mbl.is/Þórður

Aðeins komust 14 nýir nemendur að í Klettaskóla í Reykjavík þegar nýnemar voru teknir inn í skólann nýverið, en í skólanum njóta börn með sérþarfir kennslu.

Alls var sótt um skólavist fyrir 53 nemendur og af þeim uppfylltu 42 þau skilyrði sem gerð eru. Flestar umsóknirnar voru vegna barna sem sóttust eftir skólavist í 1. bekk og voru 12 nemendur teknir inn í þann árgang, en tveir í aðra. Þetta upplýsir Arnheiður Helgadóttir skólastjóri Klettaskóla í samtali við Morgunblaðið.

„Skólinn er hugsaður fyrir 70-90 nemendur, en í vetur höfum við verið með 146 nemendur, þannig að við erum með miklu fleiri nemendur í skólanum en við eigum að vera. Húsnæðið býður ekki upp á að við tökum við fleiri nemendum og í raun höfum við verið að bæta við kennslustofum og gert allt til að búa til rými fyrir sem flesta,“ segir Arnheiður.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert