Landsvirkjun segir það koma á óvart að eftirlitsstofnun EFTA (ESA) skuli hefja rannsókn á fyrirtækinu, en ESA ákvað í dag að rannsaka hvort Landsvirkjun hefði brotið gegn samkeppnisreglum Evrópska efnahagssvæðisins (EES).
Verður rannsakað hvort Landsvirkjun hafi brotið samkeppnisreglur með því að neita að afhenda raforku til fyrirtækja sem leitast eftir því að framleiða vetni og/eða rafeldsneyti á Íslandi.
Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að fyrirtækinu hafi borist erindi frá ESA í júní 2024 þar sem óskað var eftir gögnum og upplýsingum um hugsanlega raforkusölu Landsvirkjunar til nýrra viðskiptavina. Þeirri fyrirspurn hafi svo verið svarað í ágúst sama ár.
Segir enn fremur í tilkynningunni að ákvörðun ESA feli í sér upphaf ítarlegrar rannsóknar, en ekki niðurstöðu um samkeppnishamlandi háttsemi fyrirtækisins. Þá gefi ákvörðunin enga vísbendingu um endanlega niðurstöðu rannsóknarinnar né felist í henni nokkurs konar afstaða um tilvist brots á samkeppnislögum.
„Ákvörðun ESA kemur á óvart. Ástæða þess að ekki hefur verið unnt að selja raforku til vetnis- eða rafeldsneytisverkefna er sú að staðan í kerfinu hefur verið mjög þröng og Landsvirkjun hefur þurft að skerða bæði afl og orku til núverandi viðskiptavina á undanförnum árum. Að sama skapi hafa tafir í leyfisveitingaferli nýrra virkjana komið í veg fyrir að unnt sé að styðja við mörg ný verkefni.
Landsvirkjun hefur þurft að tilkynna fjölmörgum aðilum með mjög áhugaverð verkefni að ekki sé unnt á þessu stigi að verða við beiðni um orkukaup af þessum ástæðum. Við útilokum ekki að það verði mögulegt í framtíðinni og mun það m.a. ráðast af uppbyggingu nýrra virkjana. Það kemur því verulega á óvart ef nálgun okkar felur í sér brot á EES-samningi þegar hvorki er til orka eða afl í kerfinu og því ekki hægt að verða við flestum beiðnum um sölu,“ segir í tilkynningunni.
Þá muni Landvirkjun leggja sig fram um að upplýsa öll þau atriði sem ESA telji þarfnast skýringa.
Jafnframt telur Landsvirkjun að rannsóknin muni ekki leiða neitt óeðlilegt í ljós.