Átta ára fangelsi fyrir banvæna árás

Árásin átti sér stað við Skúlagötu á Menningarnótt í fyrra. …
Árásin átti sér stað við Skúlagötu á Menningarnótt í fyrra. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sautján ára piltur hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að stinga Bryndísi Klöru Birgisdóttur til bana í hnífaatlögu hans að þremur ungmennum á Menningarnótt í Reykjavík í fyrra. RÚV greinir frá.

Var dæmdi sextán ára þegar brotin áttu sér stað á Menningarnótt með þeim hætti að hann réðst til atlögu að fimm manns sem sátu í bifreið og stakk pilt í bifreiðinni ítrekað eftir að hafa brotið hliðarrúðu. Tókst öllum að komast út nema stúlku, fyrrverandi kærustu dæmda, sem hann stakk ítrekað og er Bryndís Klara heitin reyndi að bera hönd fyrir höfuð vinkonu sinnar hlaut hún þau stungusár er urðu hennar bani viku eftir atburðinn.

Setti sig í samband við lykilvitni

Var grunaði úrskurðaður í gæsluvarðhald 25. ágúst og lauk lögreglurannsókn undir nóvemberlok. Var ákæra gefin út í kjölfarið. Í vetur komst sá kvittur svo í hámæli að ákærði hefðí ítrekað sett sig í samband við lykilvitni málsins og einn brotaþola, kærustuna fyrrverandi sem Bryndís Klara varði og galt fyrir með lífi sínu. Auk þess mun hann hafa verið virkur á samfélagsmiðlum úr varðhaldi sínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert