Sjálfstæðisflokkurinn hefur ráðið Bertu Gunnarsdóttur sem fjármálastjóra flokksins. Hún mun jafnframt gegna hlutverki staðgengils framkvæmdastjóra. Berta mun hefja störf 2. maí næstkomandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Berta er lögfræðingur að mennt en hún lauk meistaraprófi frá Háskólanum í Reykjavík. Hún býr yfir víðtækri reynslu á sviði lögfræði, einkum á sviði skattamála. Hún starfaði nú síðast hjá Skattinum á eftirlits- og rannsóknarsviði með áherslu á peningaþvætti. Áður starfaði hún sem fulltrúi hjá lögmannsstofunum LOGOS og Libra lögmönnum. Þá var hún áður framkvæmdastjóri og eigandi Modulus ehf., sem sérhæfir sig í framleiðslu verksmiðjuframleiddra húsa fyrir íslenskar aðstæður, segir enn fremur.
Þá kemur fram að Berta hafi verið virkur þátttakandi í starfi Sjálfstæðisflokksins á umliðnum árum. Hún sitji í miðstjórn flokksins og gegni embætti varaformanns Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Þá leiddi hún uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í aðdraganda alþingiskosninganna 2024.
Berta er búsett í Reykjavík ásamt eiginmanni sínum, Guðmundi Bergþórssyni, viðskiptafræðingi og börnum þeirra tveimur.
Þá segir að Sigurbjörn Ingimundarson láti af störfum sem aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins eftir tíu ára starf hjá flokknum.
Hann var framkvæmdastjóri þingflokksins árin 2014 til 2022, en þá tók hann við stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra við hlið Þórðar Þórarinssonar, framkvæmdastjóra flokksins, sem lét af starfi um síðustu mánaðarmót eftir ellefu ára farsælt starf. Samkomulag er um að Sigurbjörn verði næstu vikurnar áfram til ráðgjafar um málefni flokksskrifstofunnar meðan nýtt fólk tekur við þeim margbreytilegu verkefnum, sem þar er sinnt.