Fyrirtækin BM Vallá og Pure North hlutu í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Nemendur Dalskóla voru jafnframt valdir varðliðar umhverfisins 2025.
BM Vallá og Pure North eru verðlaunuð fyrir „framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári,“ eins og það er orðað í tilkynning frá ráðuneytinu. BM Vallá í flokki stærri fyrirtækja og Pure North í flokki smærri fyrirtækja.
Í rökstuðningi dómnefndar fyrir valinu á Pure North sem handhafa Kuðungsins 2024 segir að fyrirtækið hafi með einstökum hætti markað sér sess sem leiðandi umhverfistæknifyrirtæki á Íslandi.
Pure North hafi með nýtingu jarðhita við plastendurvinnslu náð að draga úr kolefnisspori vinnslunnar um 82% miðað við sambærilega framleiðslu í Evrópu, sem gerir endurunnið plast þeirra með því umhverfisvænasta sem finnst á markaði. Þá hafi Pure North náð að loka endurvinnsluhringrásinni með því að hefja framleiðslu á vörum úr plastinu sem fyrirtækið fái inn til endurvinnslu.
Metnaðarfulla vinna Pure North við þróun úrgangslausna sé ekki síður lofsverð, líkt og hugbúnaðurinn „Úlli úrgangsþjarkur”, sem nýtir gervigreind til greina úrgangsgögn fyrirtækja og sveitarfélaga, og móttöku- og flokkunarstöðin „Auðlind” séu til vitnis um. Segir í úrskurði dómnefndar að með samþættingu Auðlindar við hugbúnaðinn Úlla hafi „Pure North skapað fyrirmyndar umgjörð fyrir skilvirka úrgangsstjórnun og hringrásarhugsun á Íslandi.“
Í rökstuðningi sínum fyrir valinu á BM Vallá bendir dómnefndin á að fyrirtækið hafi tekið stór skref í átt að sjálfbærari og vistvænni mannvirkjagerð. Vistvæna steypan sem BM Vallá þróaði undir vörumerkinu „Berglind”, geti dregið úr kolefnisspori um allt að 45%. Aðgerðir fyrirtækisins að skipta hefðbundnu sementi út fyrir vistvænna sement hafi leitt til samdráttar í kolefnislosun um 4.000 tonn af CO₂, sem samsvari árlegum útblæstri 3.450 fólksbíla.
Þá stuðli BM Vallá að hringrásarhugsun með nýtingu afgangsefna í framleiðslu og með þróun á hringrásarhúsum, sem munu geta dregið úr byggingaúrgangi um allt að 90%. BM Vallá leggi ennfremur kapp á að kynna vistvænni lausnir fyrir viðskiptavinum og að stuðla að bættri umhverfisvitund innan byggingariðnaðarins og hjá eigin starfsfólki. Byggingariðnaðurinn sé sá iðnaður sem losar hvað mest kolefni á heimsvísu og því veiti framtak BM Vallá möguleika á stórfelldum samdrætti í losun byggingariðnaðar á Íslandi.
Verðlaunagripurinn Kuðungurinn er hannaður af þeim Birtu Rós Brynjólfsdóttur og Hrefnu Sigurðardóttur hjá Fléttu hönnunarstofu, en þær hafa sérhæft sig í að hanna úr endurnýttum efnivið. Við hönnun og framleiðslu Kuðungsins settu þær sér fastar skorður og nýttu til þess eingöngu endurnýttan efnivið eða afgangsefni frá annarri framleiðslu.
Í dómnefnd sátu Helga Hvanndal Björnsdóttir, formaður, Reynir Smári Atlason, f.h. Samtaka atvinnulífsins, Sigmundur Halldórsson f.h. Alþýðusambands Íslands og Þuríður Helga Kristjánsdóttir, f.h. félagasamtaka á sviði umhverfisverndar.
Nemendur í 9. og 10. bekk Dalskóla köfuðu ofan í umhverfismálin á þemadögum skólans og unnu verkefni út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna í gegnum sköpun, fræðslu og gervigreind sem skilaði fjölbreytilegum verkefnum með áhugaverðri nálgun á umhverfismálin, segir í tilkynningunni.
Meðal verkefna má nefna borðspil um matarsóun, marglyttulampa úr plastúrgangi þar sem kastljósinu er beint að mikilvægi hafhreinsunar, hönnunarverkefni um slæm áhrif skynditísku og mikilvægi endurnýtingar textíls, sem og myndbönd um matarsóun, sem vöktu sérstaka athygli dómnefndar. Þar tóku nemendur 10. bekkjar að sér útskýra með myndrænum hætti áhrif matarsóunar á einföldu máli fyrir yngri bekki skólans.
Það er einróma mat valnefndar að nemendur og starfsfólk unglingadeildar Dalskóla hafi í sameiningu orðið þess verðug að hljóta viðurkenningu Varðliða umhverfisins 2025. Viðurkenninguna hljóta nemendur með fjölbreyttum verkefnum sínum og efnistökum þar sem vitundarvakning og umhverfisskilaboðum er miðlað með auðugum hætti og fjölþættri nálgun.