Skil lægðar fór allhratt yfir landið í nótt með tilheyrandi suðaustanstrekkingi og rigningu og í dag fer lægð svo til austurs með suðurströndinni og verður vindur því norðvestlægari, styttir víða upp og kólnar heldur.
Það verður suðlæg átt með morgninum, 5-13 m/s og rigning með köflum en úrkomulítið norðaustan til. Hitinn verður á bilinu 5-13 stig og verður hlýjast fyrir norðan. Það snýst svo í norðvestan 3-10 m/s í kvöld. Það dregur úr vætu og kólnar heldur.
Á morgun verða vestan og norðvestan 5-13 m/s. Það verður skýjað og víða rigning fyrir norðan en léttskýjað suðaustan til. Um landið vestanvert verður súld um kvöldið. Hitinn verður á bilinu 4 til 14 stig, hlýjast á Suðausturlandi.