„Erum á góðri leið“

Þrír sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins.
Þrír sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Sigurður Bogi

Að sögn Sveins Kristjáns Rúnarssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurlandi, miðar rannsókn rannsókn á máli er varðar meinta frelsissviptingu, fjárkúgun og manndráp sem upp kom 10. mars síðastliðinn vel en maður á sjötugsaldri fannst þungt haldinn í Gufunesi og lést á sjúkrahúsi stuttu síðar.

Þrír sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við málið og rennur það út þann 9. maí næstkomandi en á tímabili voru sjö í varðhaldi vegna málsins.

„Rannsóknin gengur vel. Við erum enn að safna saman gögnum í málinu og púsla því en við erum á góðri leið og getum vonandi skilað málinu af okkur sem fyrst,“ segir Sveinn í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert