Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Landsvirkjun til að rannsaka hvort félagið hafi brotið samkeppnisreglur Evrópska efnahagssvæðisins (EES).
Þetta segir í tilkynningu frá EFTA.
Verið er að rannsaka hvort Landsvirkjun hafi brotið samkeppnisreglur með því að neita að afhenda raforku til fyrirtækja sem leitast eftir því að framleiða vetni og/eða rafeldsneyti á Íslandi en slík háttsemi gæti talist samkeppnishamlandi.
Þá mun rannsóknin snúa að því hvort markaðshegðun Landsvirkjunar í samningum og viðræðum um hugsanlega langtíma orkukaupasamninga og viðmið Landsvirkjunar við val á mögulegum viðskiptavinum brjóti gegn samkeppnisreglum EES.
„Ákvörðun ESA um að hefja rannsókn á mögulegri samkeppnishamlandi háttsemi var tekin í kjölfar kvörtunar frá aðilum á markaði. Frá því að kvörtunin barst hefur ESA aflað og greint upplýsingar sem tengjast vetnis- og rafeldsneytisverkefnum og -mörkuðum.
ESA hefur tilkynnt Landsvirkjun, framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og samkeppnisyfirvöldum EES EFTA-ríkjanna um að stofnunin hafi hafið rannsókn á samkeppnishamlandi háttsemi,“ segir í tilkynningunni.
Kemur þar þá fram að athugun á mögulegri samkeppnishamlandi hegðun sé ekki bundin neinum lögbundnum tímafrestum og að tímalengd samkeppnisrannsóknar velti á ýmsum þáttum, þar á meðal flækjustigi máls og samvinnu þeirra fyrirtækja sem sæta rannsókn ESA.
„Ákvörðunin um að hefja málsmeðferð felur hvorki í sér að ESA hafi komist að niðurstöðu um brot né vísbendingu um endanlega niðurstöðu rannsóknarinnar. Ákvörðunin felur eingöngu í sér upphaf ítarlegrar rannsóknar ESA.“