Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir embættið ekki geta tjáð sig um mál Lúðvíks Kristinssonar á meðan það er í rannsókn.
Greint hefur verið frá því að varðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sé grunaður um að hafa njósnað um fólk gegn greiðslu. Málið nær aftur til ársins 2012.
Lögreglumaðurinn sem um ræðir er Lúðvík Kristinsson. Hann hefur verið leystur undan vinnuskyldu á meðan rannsókn málsins stendur yfir hjá ríkissaksóknara.
Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að lögreglan geti ekki tjáð sig um málið á meðan það er á borði ríkissaksóknara. Hún geti aðeins tjáð sig að rannsókn lokinni.
Bent hefur verið á að brot sé gegn 32. grein lögreglulaga að sinna öðrum störfum utan lögreglunnar nema með leyfi frá lögreglustjóra.
Aðspurð um hvort hún viti af fleiri málum þar sem lögreglumenn sinna öðrum störfum án leyfis segist Halla ekki hafa neina vitneskju um slíkt.