Tvennt var handtekið af lögreglunni á lögreglustöð 3, sem sinnir Hafnarfirði og Garðabæ, eftir miðnætti vegna rannsóknar á húsbroti og tilraun til þjófnaðar.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. 57 mál eru skráð í kerfi lögreglu á þessum tíma og gista sex í fangageymslum vegna rannsóknar mála.
Í miðborginni þurfti lögreglan að hafa afskipti af manni og konu vegna vegna húsbrots og var málið afgreitt á staðnum. Þá var manni vísað út af bókasafni þar sem hann var til vandræða. Tilkynnt var um þjófnað í matvöruverslun í miðborginni og var málið afgreitt með aðkomu foreldris og þá var veski og fleiri verðmætum var stolið af ferðamanni.
Lögreglan á lögreglustöð 2, sem sinnir Hafnarfirði og Garðabæ, hafði afskipti af réttindalausum ökumanni. Hann var undir áhrifum fíkniefna og var með barn í bílnum.