Icelandair með lægsta tilboð í flug til Hafnar

Icelandair hyggst nota flugvélar af gerðinni Dash 8 ef félagið …
Icelandair hyggst nota flugvélar af gerðinni Dash 8 ef félagið hreppir sérleyfissamninginn til Hafnar. mbl.is/Sigurður Bogi

Þrjú tilboð bárust í rekstur áætlunarflugs milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði til næstu þriggja ára.

Það bar til tíðinda að Icelandair bauð í verkefnið og átti lægsta tilboðið. Forveri Icelandair, Flugfélag Íslands, var á árum áður með áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hafnar.

Þeim rekstri var hætt fyrir rúmum tveimur áratugum því hann þótti ekki arðbær.

Morgunblaðið fékk upplýst hjá Guðna Sigurðssyni upplýsingafulltrúa Icelandair að ef gengið yrði til samninga við félagið væri gert ráð fyrir að flogið yrði til Hornafjarðar á DHC-8-200, Dash 8-flugvélum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert