Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, segir fréttir um njósnir Lúðvíks Kristinssonar vera áfall og að það blasi við að þær hafi áhrif á traust til lögreglunnar.
Greint var frá því að varðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu væri grunaður um að hafa njósnað um fólk gegn greiðslu. Málið nær aftur til ársins 2012.
Lögreglumaðurinn sem um ræðir er Lúðvík Kristinsson. Hann hefur verið leystur undan vinnuskyldu á meðan málið er til rannsóknar hjá ríkissaksóknara.
„Þetta er bara ofboðslegt áfall fyrir okkur. Maður er eiginlega miður sín,“ segir Fjölnir í samtali við mbl.is, þegar hann er spurður út í viðbrögð við málinu.
„Maður vissi um þetta fyrirtæki hjá Jóni Óttari og Guðmundi Hauki á sínum tíma, en óraði ekki fyrir að þetta væri svona. Maður vissi að þeir hefðu verið að vinna fyrir einhverja, en það kemur gjörsamlega í opna skjöldu að starfandi lögreglumaður hafi verið starfandi með þeim.“
Þar vísar Fjölnir til fyrirtækisins PPPSF, sem var stofnað af fyrrverandi lögreglumönnunum Jóni Óttari Ólafssyni afbrotafræðingi og Guðmundi Hauki Gunnarssyni lögmanni sem lést árið 2011.
Störfuðu þeir hjá sérstökum saksóknara þegar fyrirtækið var stofnað. Þeir voru kærðir fyrir að stela gögnum og selja gögn frá embættinu til þrotabús úti í bæ en rannsóknin var síðar látin niður falla.
Í kjölfar umfjöllunar Kveiks hefur njósnafyrirtækið komið aftur í kastljósið, þar sem Lúðvík er sagður hafa aðstoðað fyrirtækið við njósnastarfsemi sem athafnamaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson er sagður hafa fjármagnað.
Aðspurður segir Fjölnir að hann óttist að málið hafi áhrif á hvernig almenningur líti á lögregluna. Þá sé málið mikið áfall fyrir umferðardeildina, ef satt reynist að Lúðvík hafi sinnt öðrum störfum, en jafnframt vísar hann til 32. greinar lögreglulaga:
„Þú þarft leyfi hjá lögreglustjóra til að vinna önnur störf og hann metur hvort þú megir vinna þau, allt eftir því um hvaða störf er að ræða.“
„Þetta er töluvert áfall fyrir okkur öll. Þetta er lögreglumaður sem hefur lengi starfað hjá lögreglunni og margir þekkja. Þetta er kollegi og vinur og hefur áhrif á alla sem með honum starfa. Ég held að það gefi auga leið að auðvitað hefur þetta áhrif á traust til lögreglunnar. Það er bara óhjákvæmilegt.“
Er eitthvað hlutverk sem Landssambandið sinnir varðandi næstu skref?
„Það er þannig að hann er náttúrulega félagsmaður hjá okkur og borgar sín félagsgjöld, þannig að hann á rétt á ýmiss konar þjónustu frá sambandinu. Ef hann myndi t.d. óska eftir lögfræðingi, þá hefur hann rétt á að sækja um styrk til sambandsins til að greiða hluta af þeim kostnaði,“ segir Fjölnir og bætir við:
„Það er náttúrulega í svona aðstæðum sem við þurfum að huga að hagsmunum félagsmanna okkar og andlegri líðan þeirra. Auðvitað höfum við áhyggjur af þeim sem lenda í svona og viljum halda utan um þá svo ekki fari illa.“
Hann segir sambandið því vera í hálfgerðu tvöföldu hlutverki:
„Við erum að halda utan um okkar félagsmann og passa hann, þó að hann hafi gert mistök og orðið á. En svo erum við líka bara hrygg og hneyksluð í hina röndina.“
Fjölnir segir að koma þurfi í ljós hvort Lúðvík verði ákærður af ríkissaksóknara. Málið sé gamalt og ýmis atriði þurfi að skoða nánar.
„En hann klárlega kastar rýrð á lögregluna og lögreglustarfið. Það er síðan embættisins að meta hvort hann geti starfað áfram þar.“