Óvelkomnar mannaferðir við Selásskóla

Selásskóli.
Selásskóli. mbl.is/Brynjar Gauti

Foreldrar barna í Selásskóla í Árbæ hafa verið beðnir til að ræða við börn sín um að forðast samskipti við ókunnuga, eftir að vart hefur orðið við óvelkomnar mannaferðir við skólann.

Þetta kemur fram í tölvupósti sem sendur hefur verið til forsjáraðila nemenda skólans og mbl.is hefur undir höndum.

Gæsla á lóð skólans verið aukin

Í póstinum segir að lögreglu hafi verið tilkynnt um málið og að gæsla hafi verið aukin á skólalóðinni. 

Rósa Harðardóttir, skólastjóri Selásskóla, sagðist í samtali við mbl.is ekki geta tjáð sig um málið og vísaði fyrirspurnum til skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.

Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Uppfært kl. 20:30: Málið reyndist eiga sér eðlilegar útskýringar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert