Gæsluvarðhald yfir konu sem er grunuð um aðild að andláti föður síns á Arnarnesi fyrr í þessum mánuði rennur út næstkomandi miðvikudag.
Eiríkur Valberg, fulltrúi í rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að verið sé að meta hvort farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir konunni, en hún er sú eina sem hefur stöðu sakbornings í málinu.
„Það stendur enn yfir vinna að safna saman gögnum og taka skýrslur í málinu. Rannsóknin er í góðum farvegi en hún er tímafrek. Við höfum tólf vikur til að ljúka rannsókn málsins og við stefnum á að klára hana fyrir þann tíma,“ segir Eiríkur.
RÚV greindi frá því í síðustu viku að konan neitaði sök í málinu en Eiríkur segist ekki geta tjáð sig um hvað konan hafi sagt í skýrslutökum.
Maðurinn sem lést hét Hans Roland Löf. Hann var tannsmiður og fæddur 1945. Hann var búsettur í Súlunesi á Arnarnesi ásamt eiginkonu sinni og dóttur þeirra, Margréti Höllu Hansdóttur, sem situr í gæsluvarðhaldi.