Sex tilnefnd til Maístjörnunnar

Skáldin voru að vonum ánægð með tilnefningarnar í Gunnarshúsi við …
Skáldin voru að vonum ánægð með tilnefningarnar í Gunnarshúsi við Dyngjuveg núna síðdegis. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tilnefningar til Maístjörnunnar, ljóðabókaverðlauna Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Rithöfundasambands Íslands, voru kunngjörðar í Gunnarshúsi nú fyrir stundu, en verðlaunin verða veitt í Þjóðarbókhlöðunni í 9. sinn um miðjan maí.

Tilnefndar bækur eru (í stafrófsröð höfunda): Ég hugsa mig – Nokkur ljóðaljóð og sagnir eftir Anton Helga Jónsson sem Mál og menning gefur út; Geðhrærivélar eftir Árna Jakob Larsson sem Sæmundur gefur út: Þar sem dragsúgurinn er hvítur refur eftir Eyþór Árnason sem Bjartur - Veröld gefur út; Flaumgosar eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur sem JPV gefur út; Ógeðslegir hlutir eftir Sunnevu Kristínu Sigurðardóttur sem Pirrandi útgáfa gefur út og Aðlögun eftir Þórdísi Gísladóttur sem Benedikt gefur út. 

Allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2024, alls 63,  sem skilað var til Landsbókasafns Íslands voru gjaldgengar. Dómnefnd skipa Sölvi Björn Sigurðsson fyrir hönd Rithöfundasambandsins og Kamilla Einarsdóttir fyrir hönd Landsbókasafnsins. Maístjarnan er einu verðlaun á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að hvetja skáld til að yrkja og koma ljóðum sínum í útgáfu.

Umsagnir dómnefndar: 

Ég hugsa mig – Nokkur ljóðaljóð og sagnir eftir Anton Helga Jónsson

„Að lesa bókina “Ég hugsa um mig er eins og að fara í partý og heyra brot úr mörgum skemmtilegum samtölum um það sem hefur drifið á daga fólks í gegnum lífið. Bókin fjallar um hvernig við metum okkur sjálf og sambönd okkar við aðra og hvernig við reynum að ná sátt þegar við lítum til baka.“ 

Geðhrærivélar eftir Árna Jakob Larsson

„Óhætt er að segja að ljóðmælandi Geðhrærivéla birtist lesanda í senn sem einskonar spámaður og utangarðsmaður. Hinum ýmsu flötum samtímans eru oftar en ekki sendar lítið eitt eitraðar pillur, hvort sem andófið snýr að stjórnmálum, lífsvenjum eða sævarlitlu sálarlífi nútímamannsins. O tempora, o mores! var einhver tíma sagt. Styrkur bókarinnar liggur þó ekki síst í því að hún forðast fremur predikanir en glettni og kerskni, og óvæntar myndirnar gæðast lífi með frumlegu tungutaki.“

Þar sem dragsúgurinn er hvítur refur eftir Eyþór Árnason

„Hér koma saman þýð og blátt áfram prósaljóð sem svipar á tíðum til örsagna eða dagbókarbrota sögumanns sem skyggnist yfir farinn veg - og svo styttri ljóð sem flest hver fela í sér auðlæsa merkingu. Líðandin er allt um lykjandi í hlýrri og lágstemmdri ljóðabók.“

Flaumgosar eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur

„Í Flaumgosum dregur Sigurbjörg Þrastardóttir nýjar og oft býsna skemmtilegar línur í þann skáldskaparheim sem hún hefur skapað í fyrri verkum. Ljóðin eru mörg hver galsafengin og fyndin, myndirnar lævísar og tónninn leikandi á mörkum kankvísi og kaldhæðni. Í eins konar kómedíu úr heimi hversdagsins er furðan aldrei langt undan svo hárfín spennan milli ljúfsemdar og launráða skapar heildstætt safn ljóða sem gaman er að lesa.“

Ógeðslegir hlutir eftir Sunnevu Kristínu Sigurðardóttur

„Með sterku tungutaki og frumlegum myndum færir Sunneva Kristín Sigurðardóttir lesanda inn í dystópískan ævintýraheim þar sem skilningur á merkingu hefur minna vægi en tilfinning fyrir atriðum og andrúmslofti. Ljóðmælandi segir á einum stað að engum ætti að detta í hug að gefa slíkt rugl út, en slitrótt ljóðfrásögnin hefur þó sitthvað að segja, þótt fingri sé ekki auðveldlega komið á hvað það er. Framandgerving ræður för en um leið vakna spurningar um samskipti og samkennd, samkenndarleysi og eylöndin mitt í allri furðunni. “

Aðlögun eftir Þórdísi Gísladóttur

„Aðlögun er ljúfsár og fyndin bók um hið hversdagslega, ógeðslega og fallega og óþolandi sem við þurfum að aðlaga okkur að og stundum umbera. Ljóðin eru beitt, háðsk og snerta lesandann á djúpan og óvæntan hátt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert