Stjórnsýslan hafi brugðist Ólöfu

Vilhjálmur Árnason formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar telur bagalegt að borgari …
Vilhjálmur Árnason formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar telur bagalegt að borgari upplifi sig varnarlausan við meðferð stjórnsýslunnar á erindi hans. mbl.is/Karítas

Vilhjálmur Árnason, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins, telur stjórnsýsluna hafa brugðist Ólöfu Björnsdóttur í meðförum á erindi hennar er varðaði þáverandi barna- og menntamálaráðherra sem síðar leiddi til afsagnar ráðherrans.

„Það er náttúrulega ástæðan þess að við teljum okkur knúin til þess að fjalla áfram um þetta mál, að þegar borgarinn leitar til eins helsta trúnaðaraðila þjóðarinnar, forsætisráðuneytisins, og finnst vera á sér brotið og heyrir forsætisráðherrann segja í pontu Alþingis að hún sé að fara með rangt mál, erindi hennar er hafnað, en samt er upplýst um það og persónuupplýsingar veittar og annað slíkt. Það er ekki gott ef borgarinn finnur sig varnarlausan gagnvart meðferð síns máls,“ sagði Vilhjálmur í samtali við mbl.is að loknum fundi nefndarinnar vegna meðferðar á fyrrnefndu erindi Ólafar.

Hann segir forsætisráðherra hafa verið auðfúsan til þess að svara spurningum og svara mörgum þeirra vel, en eftir sitji þó nokkrar spurningar.

„Það komu kannski ekki fullnægjandi svör við öllu, eins og spurningunni um það hvernig forsætisráðherra gat fullyrt í pontu Alþingis að það ekki hafi verið óskað eftir trúnaði og trúnaði ekki lofað.“

„Mér fannst forsætisráðherra setja meiri fyrirvara um það hvort það var gert eða ekki á fundinum í dag en þegar hún svaraði fyrirspurn Hildar Sverrisdóttur á þinginu,“ segir Vilhjálmur.

Þá sé enn óljóst í hans huga hvenær trúnaður ríkir um erindi og hvenær ekki.

„Það eru einhverjar sveiflur á því hvenær við erum að tala um trúnað, og hvenær upplýsingaskyldan á við og hvenær ekki, og það er enn svolítið óljóst hvenær við erum að fjalla um stjórnsýslulögin, upplýsingalögin eða persónuverndarlögin.“

Hann telur næstu skref meðal annars vera að kalla lögspekinga fyrir nefndina til þess að fá einhver þessara atriða á hreint.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert