Uppbygging við Stuðlagil hlýtur hæsta styrkinn úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða á þessu ári eða 90 milljónir króna.
Upphæðin fer til áframhaldandi uppbyggingar við Stuðlagil á Austurlandi. Markmið verkefnisins eru áframhaldandi náttúruvernd og bætt öryggi ferðamanna sem heimsækja Stuðlagil Grundarmegin, þar um er að ræða fjölsóttasta áfangastað ferðamanna á Austurlandi, segir í tilkynningu frá Atvinnuvegaráðuneytinu.
Að þessu sinni hljóta 28 verkefni styrk úr sjóðnum og er heildarúthlutun 553,2 milljónir króna. Alls bárust 96 umsóknir um styrki að fjárhæð rúmlega 2,2 milljarða króna til verkefna að heildarfjárhæð rúmlega 3 milljarða króna. Af innsendum umsóknum voru 35 ekki taldar uppfylla formkröfur sjóðsins eða falla utan verksviðs hans. Markmið sjóðsins að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða, stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um landið og styðja við svæðisbundna þróun.
Næsthæsti styrkurinn, rúmar 60 milljónir króna, fer til uppbyggingar við Staðarbjargavík í Skagafirði. Markmið verkefnisins er að bæta aðgengi ferðamanna að mikilli náttúrufegurð og jarðmyndunum.
„Að venju snúa verkefnin að fjölbreyttri uppbyggingu, m.a. á sviði öryggismála, náttúruverndar, innviðauppbyggingar o.fl. Af þeim verkefnum sem fá styrk að þessu sinni eru 26 af 28 verkefnum skilgreind á áfangastaðaáætlun innan síns svæðis sem eru unnar heima í héraði á forsendum heimafólks.
Í úthlutuninni að þessu sinni var lögð áhersla á minna sótt svæði og lengingu ferðatímabils. Gæðamat sjóðsins tók mið af þessari áherslu. Af þeim 28 verkefnum sem hlutu styrk eru 10 á Austurlandi og 4 á Vestfjörðum en fæstir erlendir ferðamenn gista á þessum landssvæðum,“ segir í tilkynningunni.
„Framkvæmdasjóður ferðamannastaða gegnir stóru hlutverki í uppbyggingu ferðaþjónustu í landinu. Það er ánægjuefni að geta stutt svo mörg verðug og spennandi verkefni sem styrkja þessa mikilvægu atvinnugrein,“ er haft eftir Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra í tilkynningunni.