Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, segist ekki vita til þess að upplýsingar um eðli erindis þess sem barst forsætisráðuneytinu og vörðuðu þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, Ásthildi Lóu Þórsdóttur, hafi lekið til ráðherrans úr forsætisráðuneytinu.
„Ég veit ekki til þess [að upplýsingum hafi verið lekið]. Ég veit ekki hvernig hún komst yfir þær upplýsingar um hvaða tengsl þessi kona hafði við hana. Það er bara hið hreinskilna svar. Það eru auðvitað ýmsar leiðir í okkar samfélagi til að afla sér upplýsinga ef fólk hefur áhuga á því. En það liggur alveg fyrir að það voru engin samskipti um þetta mál við menntamálaráðherra eða einhvern sem var að starfa þarna fyrir hana eftir að eðli erindisins lá fyrir,“ segir Kristrún.
Kristrún fékk að sögn fyrst upplýsingar um eðli erindis Ólafar Björnsdóttur, sem vildi eiga við hana fund, fimmtudaginn 13. mars. Í kjölfar þess að fyrir lá hversu viðkvæmt málið væri segir hún engin samskipti hafa átt sér stað milli ráðherranna, eða aðstoðarmanna þeirra, um málið fyrr en 20. mars, það er viku síðar, þegar fjölmiðlar voru komnir á snoðir um málið.
Áður en eðli erindisins lá fyrir hafði Ólöf, sem er fyrrverandi tengdamóðir barnsföður Ásthildar Lóu, óskað eftir fundi við forsætisráðherra til að ræða mál sem snerti Ásthildi Lóu.
Fyrir liggur að þegar nafn og aðrar persónuupplýsingar Ólafar voru bornar undir Ásthildi Lóu kannaðist hún ekki við konuna. Engu að síður virðist hún hafa orðið efni erindisins áskynja með einhverjum hætti áður en málið rataði í fjölmiðla, enda hringdi hún margsinnis og mætti heim til Ólafar dagana 16. - 19. mars, það er eftir að upplýsingar um erindið höfðu borist forsætisráðuneytinu en áður en fjölmiðlar fóru að spyrjast fyrir um málið.
Á opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar (SEN), þar sem fjallað var um meðferð forsætisráðuneytisins á erindi Ólafar, kom fram að Kristrún og Ásthildur Lóa sátu saman fund föstudaginn 14. mars, degi eftir að Kristrún var upplýst um hvers eðlis málið væri.
Á fundi SEN sagði Kristrún fyrrnefndan fund hafa varðað fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar og að erindi Ólafar hafi ekki verið rætt.
Bergþór Ólason, nefndarmaður fyrir hönd Miðflokksins, dró það í efa á fundi SEN að málið hafi ekki komið til tals eftir að forsætisráðherra varð þess áskynja hvers eðlis erindið væri.