Uppsagnir á Stöð 2: Framleiðsludeild lögð niður

Milli fimm og tíu manns hefur verið sagt upp.
Milli fimm og tíu manns hefur verið sagt upp. Haraldur Jónasson/Hari

Níu manns hefur verið sagt upp á framleiðsludeild Stöðvar 2. Enginn af þeim sem hvað þekktastir eru á skjánum í þeim innlendu þáttum sem fyrirtækið hefur framleitt mun missa vinnuna.

Hins vegar hefur Sýn sagt upp starfsmönnum í hópi klippara og framleiðenda.

Í frétt af innanhúsmálum á Vísi kemur fram að framleiðslu þátta fyrirtækis verði útvistað til framleiðslufyrirtækja. 

Haft er eftir Kristjönu Thors Brynjólfsdóttur, framkvæmdastjóra Miðla hjá Sýn, að breytingin geri fyrirtækinu kleift að endurfjárfesta meira beint í dagskrárefni.

Í þessu samhengi er vert að nefna að um 25% af framleiðslukostnaði innlendra framleiðslufyrirtækja fæst endurgreiddur frá ríkinu.    

Fréttin hefur verið uppfærð 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert