Úrræði fyrir sakhæf og hættuleg börn bíður

Nýtt úrræði fyrir ósakhæf börn verður tekið í gagnið í …
Nýtt úrræði fyrir ósakhæf börn verður tekið í gagnið í maí. Ljósmynd/Colourbox

Ekki verður hægt að ljúka undirbúningi og framkvæmdum vegna vistunarúrræðis fyrir sakhæf börn og börn sem eru hættuleg sjálfum sér og öðrum, fyrr en langtímameðferðarheimilið Lækjarbakki verður opnað á ný, í fyrsta lagi næsta haust.

Hins vegar er gert ráð fyrir að nýtt úrræði á vegum Barna- og fjölskyldustofu fyrir ósakhæf börn og börn sem beita alvarlegu ofbeldi verði tekið gagnið í maí. 

Það úrræði, sem nefnt hefur verið Farvegurinn, er ætlað ungmennum sem eru að ljúka meðferð á meðferðarheimilum Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) eða hafa hlotið dóm fyrir ofbeldi, að því er segir í skriflegu svari BOFS við fyrirspurn mbl.is. Tilgangurinn er að beina ungmennunum í nýjan farveg, en verkefnið er fjölþætt og krefst samvinnu margra aðila og stofnana.

„Farvegurinn er hannaður til að aðstoða einstaklinga við að fara úr vernduðu umhverfi meðferðarheimilis og/eða til að hindra endurtekningu brota hjá þeim sem hafa fengið dóm fyrir ofbeldi. Farvegur er ígildi eftirmeðferðar þar sem áhersla er lögð á að byggja upp jákvæða og verndandi þætti í umhverfi ungmennis og að það verði yfirfærsla á því sem unnið hefur verið með á meðferðartímanum,“ segir í svarinu.

Verða að bíða eftir opnun Lækjarbakka

Haustið 2024 var lagt til, sem hluti af aðgerðum gegn ofbeldi meðal barna og gegn börnum, að farið yrði af stað í undirbúning á vistunarúrræði vegna afplánunar sakhæfra barna og vegna alvarlegustu mála barna sem eru hættuleg sjálfum sér og öðrum. Sem og vistunarúrræði fyrir börn með alvarlegan hegðunarvanda sem þurfa gæslu allan sólarhringinn. Enda kom það í ljós við reglulegt mat á stöðu meðferðarúrræða BOFS snemma árs 2024 að Stuðlar væru komnir að þolmörkum.

Gert er ráð fyrir að umrætt vistunarúrræði verði á Stuðlum og um er að ræða breytingar sem staðið hefur til að gera á starfsemi Stuðla, en þar er ekki lengur boðið upp á hefðbundna meðferðarvistun og greiningu.

Frá því bruni varð á Stuðlum í október, þar sem 17 ára drengur lést, hafa þau fjögur pláss sem eru til staðar að mestu leyti verið notuð fyrir börn í afplánun og gæsluvarðhaldi og allra þyngstu tilfellin. Í einhverjum tilfellum hafa drengir þó verið þar í langtímameðferð, þar sem slíkt úrræði hefur vantað. Gagnrýnt hefur verið að þessir einstaklingar séu hafðir saman, enda vandi þeirra mjög ólíkur.

Hluti meðferðardeildarinnar hefur verið notaður undir neyðarvistun, þar sem álma fyrir neyðarvistun gjöreyðilagðist í brunum. Búast má að endurbætur á húsnæðinu standi yfir fram að áramótum.

Ekki verður hægt að ráðast að fullu í breytingar á Stuðlum og klára þær fyrr en meðferðarheimilið Lækjarbakki verður opnað aftur í Gunnarsholti á Rangárvöllum, en það verður í fyrsta lagi næsta haust. Þar verður boðið upp á langtímameðferð fyrir drengi.

Unnið verður með andlega líðan og geðheilbrigði

Stefnt er á að ráða inn starfsfólk í Farveginn í maí og hefja starfsemi um leið og eðlileg þjálfun hefur átt sér stað.

Í úrræðinu verður lögð áhersla á að vinna með andlega þætti eins og líðan og geðheilbrigði, sem og virkni og almenna þátttöku í samfélaginu. Þá verður það haft að leiðarljósi að reyna að byggja upp verndandi þætti í lífi ungmenna og draga þannig úr þjónustuþörf og afturhvarfi til fyrra lífs.

„Nokkrir af lykilþáttum Farvegsins eru starfsþjálfun, menntun, sálfræðimeðferð, aðlögun aftur heim, fjölskyldu- og uppeldisráðgjöf, félagsfærniþjálfun og reiðistjórnun, lífsleikni og lagaleg aðstoð – og brýnt er að slíkt verði unnið í þverfaglegu samstarfi,“ segir í svari BOFS.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert