„Vandamálið með fákeppnina“

Verðbólgan mælist nú 4,2 prósent og eykst um 0,4 prósent …
Verðbólgan mælist nú 4,2 prósent og eykst um 0,4 prósent og er þetta í fyrsta sinn í tæpt ár sem verðbólga vex á milli mánaða. mbl.is/Golli

„Hækkun verðbólgunnar kemur mér aðeins á óvart en stór hluti er hækkun flugfargjalda sem er tímabundin vegna páskanna. Ég hef hins vegar áhyggjur af matvöru- og bensínverði.“

Þetta segir Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands, við mbl.is þegar leitað var eftir viðbrögðum hans um nýjustu verðbólgutölur.

Verðbólgan mælist nú 4,2 prósent og eykst um 0,4 prósent og er þetta í fyrsta sinn í tæpt ár sem verðbólga vex á milli mánaða.

„Mér sýnist að matvöruverslanir og olíufélögin séu að taka meira til sín heldur en þeim ber og þetta er bara vandamálið með fákeppnina,“ segir Finnbjörn.

Finn­björn A. Her­manns­son, for­seti ASÍ.
Finn­björn A. Her­manns­son, for­seti ASÍ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skot sem gangi til baka

Hefur þú áhyggjur af stöðunni?

„Nei, ég hef það reyndar ekki. Ég held að þetta sé bara skot sem gangi til baka. Ef við lítum fram á veginn er kólnum í hagkerfinu og ég á frekar von á því að þetta hafi ekki mikil áhrif á ákvörðun Seðlabankans varðandi stýrivextina,“ segir Finnbjörn.

Finnbjörn segir að peningastefnunefndin verði kannski varfærnari en hún hefði annars verið en hann býst við því að stýrivextirnir verði lækkaðir þegar peningastefnunefndin tilkynnir um næstu stýrivaxtarákvörðun þann 21. maí.

„Ég vil sjá stýrivextina lækka enda langt í næstu stýrivaxtarákvörðun eftir þá sem kemur í maí. Ég á von á því að nefndin líti svipað á stöðuna og muni lækka vextina.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert