Í tilefni 1. maí birti Finnbjörn Hermannsson, formaður Alþýðusambands Íslands, skriflegt ávarp. Þar fer hann hörðum orðum um markaðsvæðingu í orkumálum og stöðu launafólks í íslensku samfélagi. Yfirskrift ávarpsins er: „Við sköpum verðmætin.“
„Verkalýðshreyfingin hefur verið mikilvægasta afl framfara og breytinga í landinu. Þeirri sögu er sjálfsagt að halda á lofti, ekki síst gagnvart yngri kynslóðinni, sem tekur þeim réttindum og velferð sem áunnist hefur sem sjálfgefnum hlut,“ skrifar hann.
Finnbjörn skrifar í ávarpið í blaði sem ASÍ gaf út í tilefni dagsins, Vinnan.
Í greininni leggur Finnbjörn ríka áherslu á að það sé vinnandi fólk sem standi undir verðmætasköpun í samfélaginu og kallaði eftir uppgjöri við aðgerðir stjórnvalda í Covid-faraldrinum.
„Víða hefur slík skoðun leitt í ljós viðurkenningu á því að stjórnvöld hafi farið offari í efnahagslegum viðbrögðum sínum og valdið þannig ómetanlegum skaða.“
Í ávarpinu er dregin upp gagnrýnin mynd af þróun á vinnumarkaði. Hann varar sérstaklega við fjölgun verktakastarfa og ótryggra starfa, svokallaðra gigg-starfa, sem hann segir grafa undan réttindum launafólks.
Þessi þróun sé hluti af stærra mynstri þar sem markaðsöflin þrengi að velferðarkerfinu og réttindum almennings.
„Gigg-hagkerfið er atlaga auðhyggjunnar að siðuðu samfélagi. Markmið þessarar grímulausu niðurrifsstefnu er að brjóta á bak aftur samfélagsgildin og þar með réttindin og mannlega reisn til að arðsemiskröfur fjármagnsafla gangi óhindraðar fram,“ skrifar Finnbjörn.
Formaðurinn beindi einnig sjónum að þróun í orkumálum og gagnrýnir harðlega markaðsvæðingu raforkukerfisins. Hann vísar til nýlegrar skýrslu verðlagseftirlits ASÍ sem sýnir verulegar hækkanir á raforkuverði, allt að 37 prósent á kílóvattstund hjá sumum.
„Sterk sérhagsmunaöfl hér á landi ásælast orkuna, landið, vatnið, vindinn, jarðvarmann. Við eigum eftir að sjá harðnandi átök um þessar auðlindir þjóðarinnar í náinni framtíð og mikilvægt er að verkalýðshreyfingin og önnur samtök um almannaheill haldi vöku sinni og standi saman í þeirri baráttu,“ skrifar hann.
Í lok ávarpsins minnti Finnbjörn á sögulega baráttu verkalýðshreyfingarinnar fyrir bættum kjörum og réttlæti, og hvatti til samstöðu og skýrari sýnar í baráttunni fram undan.