Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann til tveggja ára fangelsisvistar og 41,5 milljóna króna sektar fyrir að hafa skilað efnislega röngum skattframtölum gjaldárin 2018, 2019 og 2020.
Þannig láðist honum að taka fram tekjur á skattframtölum vegna innborgana einstaklinga og einkahlutafélaga og reiðufjárinnborganir.
Í heild nam upphæðin um 51 milljón króna og reiknast skattinum til að í heild hafi maðurinn komist hjá skattgreiðslu upp á um 20,7 milljónir króna.
Fyrir dómi kemur fram að maðurinn sagðist ekki þekkja til einstaklinga og félaga sem lögðu inn á hann peninginn þegar skattrannsóknarstjóri leitaði skýringa á innlögnum árið 2020.
„Spurður hvort hann þekkti einstaklingana og félögin svaraði ákærði að jafnaði „Ég veit það ekki“ og spurður hvort hann gæti skýrt greiðslurnar svaraði hann að jafnaði „Ég veit það ekki.““ segir í dómnum.
Hins vegar gaf hann einnig skýrslu héraðssaksóknara í október árið 2022 þar sem hann skýrði innborganir einstaklinga sem lánveitingar.
Engin gögn voru hins vegar lögð fram um lánveitingarnar og metur dómurinn sem svo að engar haldbærar skýringar séu á innlögnum inn á reikning mannsins.
Fram kemur að maðurinn hlaut tólf mánaða dóm fyrir fíkniefnalagabrot árið 2018 en sú refsing var skilorðsbundin. Hins vegar rauf hann skilorð með því að skila ekki inn réttum skattframtölum.
Taldi dómurinn hæfilega refsingu vera tveggja ára fangelsi og 41,5 milljóna króna sekt í ríkissjóð. Ef hann greiðir ekki sektina innan 4 vikna þarf hann að sitja í fangelsi í 360 daga til viðbótar.