Heimili Sönnu Magdalenu rústin ein

Í nýj­asta þætti Spurs­mála var farið yfir það helsta sem var um að vera á sam­fé­lags­miðlum hjá ráðamönnum þjóðar­inn­ar í vik­unni. Yf­ir­ferðina má sjá í meðfylgj­andi mynd­skeiði en henni verður einnig gerð skil hér að neðan með líflegum hætti.

Snúlli Snúllason kominn í heiminn

Þá er frídaga „festival-inu“ loksins lokið. Allir löngu orðnir uppiskroppa með hugmyndir að afþreyingu fyrir börnin alla þessa frídaga þar sem búið er að fara í sund sirka 360 sinnum, 15 sinnum í Húsdýragarðinn, 8 sinnum í mekka svitabaðsins, Skopp í Kópavogi, og svo miklu meira til.

Hverjum datt í hug að eignast öll þessi börn? Frídagar snúast upp í algjöra andhverfu með öll þessi börn í eftirdragi.

Þau Snorri Másson og Nadine Guðrún Yaghi ættu kannski að hugsa út í það í næsta rúmfræðitíma.

Annars óskum við þeim innilega til hamingju með nýjasta erfingjann. Lítill Snúlli Snúllason mætti á svæðið í vikunni sem nú er að líða undir lok. Sá þriðji í röðinni hjá þeim og er hann ekkert eðlilega mikið krútt. Enda á hann ekki langt að sækja það. Þið sjáið undan hverju hann kemur!

Skvísulæti alla daga

„Sætudagar“ Obbu eru farnir að koma og fara jafnört og Leifturdagar á Boozt nema hvað að Obba gefur engan afslátt af sætunni þessa dagana. Hún skellti sér í myndatöku hjá Sigurjóni Ragnari ljósmyndara á dögunum og skartaði sínu fegursta. Hlutverk hennar sem dómsmálaráðherra er að fara henni geðveikt vel.

Óvart allt kollagenið

Talandi um að líta vel út! Diljá Mist póstaði þessari sætu mæðgnamynd í vikunni á 70 ára afmælisdegi mömmu sinnar. Já, ég sagði 70 ára! Þessi kona getur ekki verið sjötug? Glætan spætan skítarætan. Hvað er eiginlega í vatninu þarna í Grafarvogi? Bara óvart allar kollagen birgðirnar eða? Þær gætu verið systur, ég sver það!

Sjálfur og stemning í útför Pope Francis

Æ, svo var það útför Frans páfa. Blessuð sé minning hans, hann var góður maður. Vinkonurnar Togga Gunn og Halla Tomm forseti gerðu sér ferð og fylgdu honum síðasta spölinn. Tóku líka nokkrar sjálfur með öldruðum og heilabiluðum, eða þið vitið, Joe Biden, fyrrum forseta Bandaríkjanna, sem er álíka minnugur og gullfiskur þarna uppi í toppstykkinu. En þó virtist þetta vera góð ferð til Rómar hjá þeim stöllum, Toggu og Höllu, þrátt fyrir tilefni ferðarinnar.

Kóngurinn - meistarinn!

Pawel Bartoszek olli vonbrigðum í vikunni og deildi engri sjálfu. Hann þarf að stíga aðeins upp ef hann ætlar að verja sjálfukóngstitilinn. Nema að hann geti sannað að hann sé Rubik's-kubbameistari? Óþarfi að röfla um lögun kubbsins. Þetta er ekkert mál. Bara einn, tveir til vinstri, einn, tveir til hægri, einn, tveir, þrír fram og einn, tveir, þrír, fjórir… Nei Guð - þetta er bara fyrir nörda.

En eins og áður sagði, engin sjálfa frá Pawel bara uppstillt mynd af honum og einhverjum evrópusambandsgæja sem er tvífari Brynjólfs Ingvarssonar, elsta og þurrasta pólitíkusi á Akureyri og þó víðar væri leitað. Mana ykkur til að Google-a nafnið! Ég meina hver er hvað? Ég sé engan mun. Núll!

Heiðvirtasti borgarinn plokkaði rusl

Stóri plokkdagurinn fór ekki framhjá neinum eða jú, ég er að ljúga því hann fór eiginlega framhjá öllum nema heiðvirtasta borgaranum. Sjálfri Heiðu Björgu borgarstjóra sem plokkaði upp rusl eftir sóðabrækurnar sem búa í Reykjavík, en þær eru nú ekki margar miðað við magnið í ruslapokanum á þessari mynd - „just saying“.

Sterkari saman í baráttunni

Verkalýðsdagurinn fór fram með pompi og prakt í vikunni og að sjálfsögðu fylktu Samfylkingin og Sósíalistar liði í kröfugöngu og deildu stuðinu þaðan á sína miðla með ýmsum misgóðum yfirskriftum sem helst minna á eitthvað alkahólista hlaðvarp. Sterkari saman - manneskja ekki markaðsvara. Vantaði bara hlaðvarpsstjörnuna Tinnu Barkardóttur, þá hefði þetta allt smollið.

Heimilið í rúst

Það hefur margt drifið á daga Sönnu Magdalenu. Allt í rúst í Sósíalistaflokknum og allt í rúst á heimili hennar. Hún Margrét Sigfúsdóttir heitin, fyrrum skólastýra Hússtjórnarskólans og algert „legend“, hefði þurft að tuska Sönnu aðeins til. Sko í bókstaflegri merkingu.

Sanna Magdalena hefur nóg annað að gera en að sinna …
Sanna Magdalena hefur nóg annað að gera en að sinna heimilisverkunum. Samsett mynd

Svo mætti líka benda Sönnu á að það er offramboð af fólki sem býður upp á heimilisþrif í gegnum Facebook. Allt svart og sykurlaust þar. Um að gera að vera atvinnuskapandi í núverandi árferði. Nei ég segi nú bara svona, bara ein góð hugmynd af mörgum. 

Hamfarir Jóns

Jón Gnarr fór hamförum á miðlunum í vikunni. Sýndi hann frá óreiðunni í drulluskítugum bíl sínum og kennir ADHD-inu sínu um. Alltaf gott að hafa einn svona blóraböggul til að kenna um allt sem þú ert ekki „proud“ af. Svo mætti hann eins og útigangsmaður í Stjórnarráðið, ekki í fyrsta sinn reyndar og sennilega ekki að það síðasta heldur, og svo fór hann yfir stóru málin ásamt Tvíhöfðabróður sínum í „live-útgáfu“ á Instagram. Þeir eru svo miklir grallarar, án efa skemmtilegustu gamlingjar landsins. Sjá þá!

View this post on Instagram

A post shared by Jón Gnarr (@jongnarr)

View this post on Instagram

A post shared by Jón Gnarr (@jongnarr)

View this post on Instagram

A post shared by Jón Gnarr (@jongnarr)

Tæknilæsið í Fjörgyn dvínar

Inga Sæland segir Flokk fólksins sýna vilja í verki en ekki í gegnum einhverjar innantómar glærusýningar eins og aðrir flokkar eigi það til að gera. Þar fer hún ekki með neinar dylgjur því þetta er alveg rétt hjá henni. Enda kannski dalar tæknilæsi eldra fólks með árunum. Það kann auðvitað enginn á PowerPoint þarna á elliheimilinu í Fjörgyn.

Nýjasta þátt Spursmála má nálgast í heild sinni í spilaranum hér að neðan.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert