Skjálfti upp á 3,1

Skyndilega fór að bera á skjálftum í Ljósufjallakerfinu árið 2021. …
Skyndilega fór að bera á skjálftum í Ljósufjallakerfinu árið 2021. Þeir hafa að mestu verið bundnir við afmarkað svæði við Grjótárvatn og Hítarvatn. mbl.is/Árni Sæberg

Jarðskjálfti af stærðinni 3,1 varð við Grjótárvatn á Mýrum upp úr klukkan fjögur í dag. Nokkur skjálftavirkni hefur verið upp á síðkastið á þessu svæði og seinast mældist skjálfti að svipaðri stærðargráðu 23. apríl. 

Skjálftarnir mælast í hinu svokallaða Ljósufjallakerfi en ekki hefur gosið þar í hartnær þúsund ár. Skjálftarnir eru á miklu dýpi en þykja bera vott um mögulega eldvirkni. Ljósu­fjalla­kerfið ligg­ur frá Snæ­fellsnesi og að Grá­brók og dreg­ur nafn sitt af Ljósu­fjöll­um. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert