Svefnlausu næturnar voru allar þess virði

Guðrún lýsir hvernig sonur hennar mátti aðeins hringja frá Bandaríkjunum …
Guðrún lýsir hvernig sonur hennar mátti aðeins hringja frá Bandaríkjunum klukkan 21.30, eða klukkan 3.30 að íslenskum tíma. Þannig voru margar svefnlausar nætur, en þær allar þess virði. mbl.is/Óttar

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, heldur til Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum í dag, þar sem hún mun vera viðstödd útskrift yngsta sonar síns, Hauks Davíðssonar.

Guðrún greinir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni.

Haukur hefur dvalið í herskóla í Nýju-Mexíkó síðustu tvö ár og segir Guðrún að þetta sé í fyrsta sinn sem hún heimsæki hann þangað.

Hún segir að annasamir tímar hafi einkennt bæði líf þeirra, en hún tók við embætti dómsmálaráðherra á sama tíma og sonur hennar hóf nám sitt í Bandaríkjunum. Síðar tók hún þá ákvörðun að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins.

Gat bara hringt heim á næturnar

„Fyrstu vikurnar og mánuðirnir voru mjög krefjandi fyrir hann og sem dæmi var símanotkun takmörkuð. Í byrjun var símanotkun ekki leyfð í skólanum, en hann fékk að hringja kl. 21:30 að kvöldi að sínum tíma, sem þýddi 03:30 að nóttu til hér heima. Ég man enn hvernig hjartað sló alltaf aðeins hraðar þegar ég heyrði símann hringja á nóttunni,“ skrifar Guðrún og heldur áfram:

„Eins og allar mæður vita þá lærir maður að sofa með annað eyrað opið þegar barnið manns er langt í burtu. Þær urðu ófáar, svefnlausu næturnar, en þær voru allar þess virði.“

„Ég gæti ekki verið stoltari móðir

Í viðtali við Vísi í gær lýsti Haukur því hvernig eitt „já“ leiddi af öðru og hvernig hann endaði í herskóla í Bandaríkjunum. Hann sagði lífið stundum leiða mann á staði sem maður hefði ekki séð fyrir.

„Ég gæti ekki verið stoltari móðir! Hlakka til að hitta þig sonur sæll og kynnast umhverfinu sem hefur fóstrað þig síðustu tvö árin,“ skrifar Guðrún.

Færsla Guðrúnar í heild sinni:

„Í dag flýg ég til Nýju Mexíkó til að vera viðstödd útskrift yngsta sonar míns, Hauks Davíðssonar. Þetta er í fyrsta sinn sem ég heimsæki hann í skólann, þar sem hann hefur haft aðsetur síðustu tvö árin.

Þegar hann hóf þetta krefjandi nám var ég nýtekin við sem dómsmálaráðherra, og síðar tók ég þá stóru ákvörðun að bjóða mig fram sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Þetta hafa því verið annasamir tímar fyrir okkur bæði og ég ekki gefið mér tíma til að heimsækja hann fyrr en nú.

Fyrstu vikurnar og mánuðirnir voru mjög krefjandi fyrir hann og sem dæmi var símanotkun takmörkuð. Í byrjun var símanotkun ekki leyfð í skólanum, en hann fékk að hringja kl. 21:30 að kvöldi að sínum tíma, sem þýddi 03:30 að nóttu til hér heima.

Ég man enn hvernig hjartað sló alltaf aðeins hraðar þegar ég heyrði símann hringja á nóttunni. Eins og allar mæður vita þá lærir maður að sofa með annað eyrað opið þegar barnið manns er langt í burtu. Þær urðu ófáar, svefnlausu næturnar, en þær voru allar þess virði.

Í viðtali við Vísi í gær lýsir hann því hvernig eitt „já“ leiddi af öðru og hvernig hann endaði í herskóla í Bandaríkjunum og hvernig lífið leiðir mann stundum á staði sem maður hafði kannski ekki séð fyrir. Það er stundum þannig með stærstu skrefin í lífinu.

Ég gæti ekki verið stoltari móðir! Hlakka til að hitta þig sonur sæll og kynnast umhverfinu sem hefur fóstrað þig síðustu tvö árin.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert