Synir ekkjunnar bruna aftur af stað

Synir ekkjunnar og makar sem hjóluðu um Evrópu.
Synir ekkjunnar og makar sem hjóluðu um Evrópu. Ljósmynd/Widows Sons

Athygli vakti í fyrra þegar nokkrir frímúrarabræður fóru í heljarinnar reisu um Evrópu á bifhjólum og söfnuðu fé til styrktar Reykjadal í Mosfellsbæ. Hópurinn er ekki af baki dottinn og fram undan er önnur reisa um Evrópu til styrktar Reykjadal enda þarf mannskapurinn hvort sem er að sækja bifhjólin til Spánar.

Hjólin voru skilin eftir í geymslu í bænum San Pedro Del Pinatar, ekki ýkja langt frá Santa Rosalia í Murcia en þar lauk ferðinni í október í fyrra. Kalla má þessar slóðir Íslendingaslóðir því þúsundir Íslendinga halda til nærri borgunum Murcia og Alicante á Spáni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert