Þurftu að loka verslun vegna „mannlegra mistaka“

Verslun Nettó í Glæsibæ hefur verið lokuð í á sjöttu …
Verslun Nettó í Glæsibæ hefur verið lokuð í á sjöttu viku. Samsett mynd/Aðsend/Facebook

Nettóverslun sem þegar hafði verið opnuð í Glæsibæ hefur verið lokuð í á sjöttu viku. Í glugga verslunarinnar segir að lokað sé vegna tæknilegra örðugleika en þar með er ekki öll sagan sögð og mannleg mistök eiga sinn þátt. 

Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs hjá Samkaupum, segir að verslunin sé tilbúin að öllu leyti og hún sé öll hin glæsilegasta. Hún var opin í einn dag í lok mars en Samkaup þurftu að loka versluninni degi síðar.

Gunnur Líf Gunnarsdóttir er framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs Samkaupa,
Gunnur Líf Gunnarsdóttir er framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs Samkaupa, Ljósmynd/Nettó

Þurfa nýtt starfsleyfi 

„Við felldum niður léttan vegg til að tengja saman tvö rými og stóðum í þeirri trú að við værum með starfsleyfi en það voru mannleg mistök hjá okkur að lesa okkur ekki betur til um það,“ segir Gunnur.

Með því að fella niður vegginn voru tengd saman tvö verslunarrými þar sem áður voru veitingastaðurinn Saffran og matvörubúðin Iceland.

„Þegar veggurinn var felldur þurftum við nýtt starfsleyfi. Við opnuðum verslunina í góðri trú í einn dag en um leið og við áttuðum okkur á að við þyrftum nýtt starfsleyfi þá lokuðum við henni,“ segir Gunnur.

Tugmilljónatjón

Hún segir að umsókn um nýtt starfsleyfi hafi legið í nokkrar vikur hjá Reykjavíkurborg en frí og annað hafi komið í veg fyrir að málið væri tekið fyrir.

„Þetta er tugmilljónatjón fyrir okkur og þetta er afar leitt. Við erum að reyna að vinna þetta eins hratt og við getum en getum ekki stýrt borginni,“ segir Gunnur. Hún ítrekar þó að mistökin liggi hjá Samkaupum.

Lokaúttekt eftir 

Næsti fundur hjá skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar er á þriðjudag. Eftir að leyfi hefur verið veitt þarf að gera lokaúttekt þannig að íbúar nærri Glæsibæ þurfa að bíða um sinn eftir því að verslunin verði opnuð að nýju. 

Verslunin er tilbúin að öllu leyti.
Verslunin er tilbúin að öllu leyti. Ljósmynd/Aðsend

„En við erum mjög spennt að opna verslunina fyrir viðskiptavinum,“ segir Gunnur.  

Samkaup rekur Nettó, Iceland og Krambúðirnar og kjörbúðir á landsbyggðinni en að sögn Gunnar er stefnt að því að loka Iceland-verslunum fyrirtækisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert